mobile navigation trigger mobile search trigger
21.12.2016

Ræsting á leikskólum Fjarðabyggðar og bæjarskrifstofu

Nýlega voru undirritaðir fimm verktakasamningar um ræstingu leikskólanna Eyrarvalla, Dalborgar, Lyngholts og Kærabæjar ásamt ræstingu bæjarskrifstofunnar að Hafnargötu 2 Reyðarfirði.

Ræsting á leikskólum Fjarðabyggðar og bæjarskrifstofu
Á myndinni eru frá vinstri Gunnhildur Jóhannsdóttir og Guðbjörg O. Friðjónsdóttir frá GG þjónustu ehf., Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Snorri Styrkársson fjármálastjóri.

Verksamningarnir eru við nýtt fyrirtæki í hreingerningarþjónustu í Fjarðabyggð; GG þjónustu ehf.  GG þjónusta ehf. er í eigu þeirra Guðbjargar O. Friðjónsdóttur og Gunnhildar Jóhannsdóttur.  Ræstingar þessara stofnana voru boðnar út í verðfyrirspurnarformi og var GG þjónusta ehf. með hagstæðasta boð.

Frétta og viðburðayfirlit