mobile navigation trigger mobile search trigger
20.11.2015

Reyðarfjarðarhöfn bjargar málum

Óvenjumikil skipaumferð í Mjóeyrarhöfn gerði að verkum gámaskipi var beint til Reyðarfjarðarhafnar í dag.

Reyðarfjarðarhöfn bjargar málum

Það er ekki oft sem sjá má tvö stór skip athafna sig í Reyðarfjarðarhöfn í einu. Eitt af skipum Samskipa, sem siglir öllu jöfnu á Mjóeyrarhöfn, þurfi að losa og lesta gámum á Reyðarfirði, vegna þessarar óvenjulegu umferðar í Mjóeyrarhöfn.

Fyrir var í Reyðarfjarðarhöfn frystiskip að taka tæp 2.000 tonn af frystivöru og gaf því að líta þessi tvö flottu skip á Reyðarfirði í dag.

Frétta og viðburðayfirlit