mobile navigation trigger mobile search trigger
07.08.2020

Síðasta sýningarhelgi Ljósvaka og Splæsa

Nú fer hver að verða síðastur að sjá myndlistarsýningarnar Ljósvaki//Æther og Splæsa//Splice! en nú er síðasta sýningarhelgin að renna í garð.

Síðasta sýningarhelgi Ljósvaka og Splæsa

Vakin er á að nú er síðasta tækifærið fyrir fólk að sjá myndlistarsýningarnar Ljósvaki//Æther og Splæsa//Splice! Vegna COVID-19 faraldursins hefur verið ákveðið að loka sýningunum eftir helgi. Síðasti sýningardagur er því sunnudagurinn 9. ágúst.

Við hvetjum alla sem ekki hafa skoðað þessar dásamlegu sýningar í gömlu Netagerðinni í Neskaupstað og í Gamla barnaskólanum á Eskifirði til þess að skella sér. Opið verður á báðum stöðum milli kl. 13:00 og 17:00 föstudag, laugardag og sunnudag.

Við hlökkum til þess að sjá ykkur!

Frétta og viðburðayfirlit