mobile navigation trigger mobile search trigger
25.07.2017

Sjálfboðaliða vantar til starfa við Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum

Unglingalandsmót UMFÍ eru vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem haldin er árlega og ætíð um verslunarmannahelgina. Mótin eru haldin á mismunandi stöðum en í ár fer mótið fram á Egilsstöðum.

Sjálfboðaliða vantar til starfa við Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum

Framlag sjálfboðaliða er ómetanlegur þáttur á Unglingalandsmóti UMFÍ. Ungmennahreyfingin hefur í áraraðir verið drifin áfram af öflugu hugsjónarstarfi sjálboðaliðans. Nú í ár fáum við á Egilsstöðum þann heiður að halda mótið en það var síðast haldið hér árið 2011. Á Unglingalandsmóti eru mörg sjálboðaliðastörf sem þarf að fylla og nú þegar eru margir klárir í slaginn. Allir þeir sem hafa áhuga á því að aðstoða á mótinu geta skráð sig hér fyrir neðan. Framlag sjálfboðaliða styrkir aðildafélögin sem standa að mótin en félögin fá greitt í samræmi við vinnustundir sjálfboðaliða.

Unglingalandsmótið er opið öllum á aldrinum 11 - 18 ára. Allir geta tekið þátt, óháð hvort viðkomandi sé í einhverju íþróttafélagi eða ekki.

Mótið hefst föstudaginn 4. ágúst og lýkur um miðnætti sunnudaginn 6. ágúst. Þó er sú undantekning að keppni í golfi fer fram á fimmtudeginum 3. ágúst.

Skráning sjálfboðaliða

Frétt af heimasíðu UÍA

Frétta og viðburðayfirlit