mobile navigation trigger mobile search trigger
28.01.2019

Skjala- og myndasafn Norðfjarðar – Héraðsskjalasafnið í Neskaupstað 40 ára

Miðvikudaginn 23. janúar 2019 voru liðin 40 ár frá því að Bæjarstjórn Neskaupstaðar samþykkti á fundi sínum að stofna til héraðsskjalasafns fyrir Neskaupstað. Af þessu tilefni bauð Skjala- og myndasafn Norðfjarðar – Héraðsskjalasafnið í Neskaupstað, velunnurum sem og öðrum til kaffidrykkju í Safnahúsinu við Egilsbraut.

Skjala- og myndasafn Norðfjarðar – Héraðsskjalasafnið í Neskaupstað 40 ára

Talsverður fjöldi lagði leið sína í Safnahúsið í tilefni dagsins og nutu góðra veitinga. Nokkrar ræður voru fluttar í tilefni dagsins m.a.  Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, sem flutti safninu kveðju og Guðmundur Rafnkell Gíslason, framkvæmdastjóri SÚN, færði safninu fyrir hönd SÚN, höfðinglega peningagjöf til tölvukaupa og tæknivæðingar. 

Veislustjóri var Jón Björn Hákonarson forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar og formaður Safnanefndar Fjarðabyggðar. Konur frá Kvenfélaginu Nönnu sáu um veitingar og félagar úr Harmonikkufélagi Norðfjarðar léku nokkur lög.

Frétta og viðburðayfirlit