mobile navigation trigger mobile search trigger
09.10.2019

Sóley og ofurhetjan - sigurvegarar í smásagnasamkeppni KÍ 2019

Nemendur í leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði, Júlíanna Líf Helgadóttir, Kristófer Daði Stefánsson og Þóroddur Björn Óskarsson eru sigurvegarar í Smásagnasamkeppni KÍ 2019 í flokki leikskólabarna.  Verðlaunin fengu þau fyrir smásöguna Sóley og ofurhetjan.

Sóley og ofurhetjan - sigurvegarar í smásagnasamkeppni KÍ 2019

Í umsögn dómnefndar segir; "Sóley og ofurhetjan er saga um sterkustu konu á Íslandi. Í aðeins örfáum línum tekst höfundinum að vísa í Línu langsokk, gamalt ævintýri og sögur af ofurhetjum nútímans og í sameiningu bjarga persónurnar allri plánetunni, sem er auðvitað mikilvægasta verkefnið sem jarðarbúar dagsins í dag standa frammi fyrir. Þetta er virkilega hressandi örsaga!"

Nánar má lesa um Smásagnakeppnina á síðu Kennarasambands Íslands

Frétta og viðburðayfirlit