mobile navigation trigger mobile search trigger
26.05.2020

Sumarsmiðjur fyrir börn í 3. - 7. bekk

Menningarstofa Fjarðabyggðar býður uppá sumarsmiðjur fyrir börn sem voru að ljúka 3.-7. bekk grunnskólans. Boðið er uppá fjölbreytt námskeið víðsvegar um Fjarðabyggð og hvetjum við fólk til að sækja námskeið milli staða.

Sumarsmiðjur fyrir börn í 3. - 7. bekk

Námskeiðin eru nú haldin í þriðja sinn og hafa notið vinsælda í Fjarðabyggð.

Hér er að finna skráningarform og nánari upplýsingar:

Við biðjum foreldra um að vera tímanlega í að skrá börnin en skráningarfrestur rennur út 7 dögum áður en námskeið hefst. ATHUGIÐ! Lágmarksfjöldi á námskeið eru fimm þátttakendur, náist ekki skráning 14 dögum áður en námskeið hefst verða námskeið felld niður (nema á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík þar sem við munum meta stöðuna með foreldrum, ekki hika við að hafa samband).

Fylgist með tilkynningum á facebook síðu Menningarstofu: www.facebook.com/menningarstofa/

Verð fyrir hvert námskeið er 10.000 kr

- Veittur er 25% systkinaafsláttur (verð: 7500 kr. fyrir hvert barn)

- Ef barn tekur þátt í fleiri en einu námskeiði er einnig veittur 25% afsláttur  (verð: 7500 kr. fyrir hvert námskeið)

Greiðsluseðlar verða sendir í heimabanka skráðra forráðamanna að námskeiðum loknum.

Nánari upplýsingar um námskeiðin eru veittar í síma 896 6971 og í tölvupósti á netfang:  ari.allansson@fjardabyggd.is

Frétta og viðburðayfirlit