mobile navigation trigger mobile search trigger
23.02.2022

Tafir á sorphirðu vikuna 21.-25 febrúar

Veður og færð eru að leika Kubb grátt þessa dagana og ekki hefur tekist að fylgja áætlun. Unnið er að losun gráu tunnunnar og þeirrar brúnu þar sem brýn þörf er á. Staðan er þannig í dag og næstu daga.

Tafir á sorphirðu vikuna 21.-25 febrúar
  • Reyðarfjörður er búinn.
  • Eskifjörður er búinn.
  • Norðfjörður á miðvikudag og fimmtudag
  • Fáskrúðsfjörður vonandi á föstudag ef næst að klára Norðfjörð.
  • Stöðvarfjörður og Breiðdalur á laugardag en gæti færst yfir á mánudag.

Við viljum minna íbúa að hreinsa frá tunnum og gera greiðfært og öruggt umhverfi fyrir starfmenn Kubbs, sem eru undir miklu álagi þessa dagana og reyna sitt besta að halda í við áætlun í gríðarlega erfiðum aðstæðum.

Við þökkum fyrir sýnda biðlund.

Kveðja Kubbur ehf.

Frétta og viðburðayfirlit