mobile navigation trigger mobile search trigger
15.10.2018

Þemadagar í Nesskóla

Frábærum þemadögum er nýlokið í Nesskóla. Á þemadögum í ár fengu öll stig skólans að velja sér viðfangsefni.

Þemadagar í Nesskóla

Yngsta stigið lagði áherslu á barnasáttmála SÞ, tækni og sköpun. Þar var að finna stöðvar eins og tækni með sphero og osmo, pödduleik þar sem nemendur eiga að henda bolta í pöddur sem eru á skjánum og ef þeir hitta, hverfa þær. Þar voru líka saumaðar friðardúfur, búinn til hnöttur og farið í jóga.

Miðstigið lagði áherslu á náttúruvernd og nýsköpun, þar voru að finna stöðvar eins og eðlisfræði þar sem nemendur áttu að reyna skjóta eldflaug eins langt og þau gætu, efnafræði þar sem nemendur voru að mæla ph gildin í ýmsum vökvum, hreyfistöð því það þarf að sjálfsögðu að hreyfa sig líka, Seesaw stöð sem er forrit í spjaldtölvum þar sem nemendur unnu sögur með því að teikna, skrifa, tala inn á. Þau unnu líka stuttmyndir um náttúruvernd, bjuggu til listaverk úr endurvinnanlegu rusli.

Síðast liðin fimmtudag var síðan uppskeruhátíð og þá fóru yngsta- og miðstigi í blandaða hópa frá 1. - 7. bekk. Þar stjórnuðu nemendur í 7. bekk leikjunum og kennarar voru til aðstoðar. Þemadagarnir og leikinir gengu glimrandi vel og að loknum góðum degi var boðið upp á vöfflur og tilheyrandi

Unglingastig Nesskóla ákvað  að vinna með náttúruhamfarir og hjálparstarf.  Nemendur skiptu sér niður á sex stöðvar og voru þær miðaðar af óskum nemenda. Þar var í boði hreyfing, Breakout þar sem nemendur bjuggu til leikinn sjálfir, búin til stuttmynd um Rauða krossinn, Björgunarsveitir, Hjálpræðisherinn, Flóttamannabúðir, SOS hjálparstarfið. Það var unnið með náttúruhamfarir og búin til líkön, samdar sögur eða hvaðeina sem nemendur datt í hug að tengja við, málað var stórt og fallegt listaverk sem þau tengdu við sína sýn af fullkomnum heimi. 

Á fimmtudaginn var síðan uppskeruhátíð þar sem unglingastigið fór í breakout, hlýttu á fræðsluerindi, horfðu á fræðslumyndbönd, dáðust að líkönu, og málverkum, borðuðu popp og skemmtu sér vel. 

Frétta og viðburðayfirlit