mobile navigation trigger mobile search trigger
27.10.2015

Rekstri skíðasvæðisins í Oddsskarði útvistað

Gerður hefur verið þjónustu- og leigusamningur við Ómar Skarphéðinsson um rekstur skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði til fimm ára. Ómar hefur um árabil séð um rekstur skíðasvæða, þar á meðal í Bláfjöllum.

Rekstri skíðasvæðisins í Oddsskarði útvistað

Rekstur skíðasvæðisins fór í útboð 10. Júlí sl. með það að markmiði að efla skíðaiðkun og auka aðsókn að svæðinu. Eitt tilboð barst, sem uppfyllti útboðsskilyrði, tilboð Ómars og var í framhaldi gert við hann þjónustu- og leigusamningur um rekstur skíðamiðstöðvarinnar. Samningurinn er til fimm ára með endurskoðunarákvæði að fyrsta rekstrarári loknu og verður þá farið yfir stöðuna með tilliti til framhaldsins.

Skíðamiðstöðin mun áfram þjóna almenningi, íþróttafélögum og ferðaþjónustuaðilum. Skíðasvæðið verður að lágmarki opið frá 26. desember til 30. apríl, þegar veður og aðstæður leyfa. Miðað er við að svæðið sé opið frá kl. 13:00 til 17:00 virka daga og 11:00 til 17:00 um helgar. Þegar fram líður á veturinn lengist opnunartími um klukkustund og er þá miðað við frá kl. 10:00 til 17:00. Fjallað er sérstaklega um aðstöðu íþróttafélaga í Fjarðabyggð og skulu skíða- og brettaæfingar leyfðar alla daga sem skíðamiðstöðin er opin, nema mestu aðsóknardaga svo sem um páska.

Rekstraraðili ber ábyrgð á rekstri, viðhaldi og öryggismálum skíðasvæðisins gegn árlegri kr. 45.000.000 samningskaupagreiðslu. Þar af eru kr. 29.000.000 vegna almenns rekstrarkostnaðar og kr. 16.000.000 vegna viðhalds. Vélar, tæki og annar búnaður verður afhentur rekstraraðilar til umsjónar í núverandi ástandi. Eignarhald skíðamiðstöðvarinnar verður einnig óbreytt ásamt þeim samningum sem til staðar eru við landeigendur.

Tekjur af skíðasvæðinu, s.s. lyftugjöldum, veitingasölu og skíðaleigu, renna til rekstraraðila. Verðlagning á lyftugjöldum tekur mið af grunngjaldskrá sveitarfélagsins fyrir árið 2015 að teknu tilliti til vísitöluhækkana. Þá ber rekstraraðila og starfsmönnum hans að þjóna sem kostur er viðskiptavinum skíðamiðstöðvarinnar.

Að sögn Páls Björgvins Guðmundssonar, bæjarstjóra, er ánægjulegt að fá, jafn reyndar rekstraraðila og Ómar er, til liðs við skíðamiðstöðina. „Haft var að leiðarljósi við samningsgerðina að öflugur og ábyrgur rekstur skíðamiðstöðvarinnar væri sameiginlegt hagsmunamál beggja samningsaðila og hefur það markmið tekist að mínu mati vel. Sveitarfélaginu er kappsmál að skíðasvæðið í Oddsskarði verði áfram með bestu skíðasvæðum á landinu.

Frétta og viðburðayfirlit