mobile navigation trigger mobile search trigger
21.08.2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 21. ágúst

Beiðnir hafa borist aðgerðastjórn gegnum netmiðla um að kynna í hvaða sveitarfélögum smitaðir dvelja. Slíkar upplýsingar um veikindi eru hinsvegar viðkvæmar persónuupplýsingar í eðli sínu og þarf því að stíga varlega til jarðar. Brýnir almannahagsmunir þurfa að vera til staðar svo birting teljist eðlileg og nauðsynleg.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 21. ágúst

Sjö eru nú smitaðir í fjórðungnum og allir í einangrun. Ekki er talið að öðrum sé hætta búin af einstaklingum í einangrun og það að ekki sé þekkt virkt smit í tilteknu sveitarfélagi þýðir ekki að íbúar þar geti talist öruggari en íbúar annarra sveitarfélaga á Austurlandi. Upplýsingar um staðsetningu virkra smita þykja því hvorki í þágu smitvarna né almannahagsmuna.

Vel hefur gengið að stöðva útbreiðslu þegar smit hafa komið upp. Smitaðir hafa strax farið í einangrun og smitrakning gengið vel. Því hefur upplýsingamiðlun um staðsetningu virkra smita ekki verið talin hafa brýnt sóttvarnargildi og slík miðlun jafnvel talin geta skapað falskt öryggi á þeim svæðum sem ekki eru tilgreind og óþarfa óöryggi hinna.

Aðgerðastjórn mun hinsvegar sem hingað til, meta þetta hverju sinni. Kann því vel að vera að upplýsingar um staðsetningu verði kynntar en þá sem nauðsyn vegna sóttvarna og þar með almannahagsmuna.

Aðgerðastjórn áréttar að endingu og vísar þá til reynslu af faraldrinum, að smit geta komið upp hvar sem er. Því er mikilvægt að við gætum öll að okkur alltaf. Þannig komumst við saman í gegnum þetta líkt og við höfum gert hingað til.

Frétta og viðburðayfirlit