mobile navigation trigger mobile search trigger
23.11.2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 23. nóvember

Eitt COVID smit er sem fyrr á Austurlandi frá þriðjudeginum 17. nóvember. Þrjátíu og átta einstaklingar fóru í skimun vegna þess og reyndust öll sýni neikvæð. Þar var um skólabörn að ræða og fullorðna sem töldust mögulega útsett. Smit var þó allan tímann talið ólíklegt sökum sóttvarnaráðstafana er viðhafðar voru af hálfu skóla og fyrirtækis er hinn smitaði starfar hjá en ekki útilokað. Svo virðist sem þau ráð hafi dugað og sýnir meðal annars mikilvægi persónubundinna sóttvarna. Í því felst meðal annars að gæta ávallt að fjarlægð, grímunotkun, handþvotti og sprittun. 

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 23. nóvember

Líkur á að smit hafi borist áfram minnka nú með hverjum deginum jafnvel þó uppruni sé óþekktur. Upprunann kann að mega rekja til einstaklings sem fann aðeins fyrir vægum einkennum, leitaði sér ekki aðstoðar á heilbrigðisþjónustu og er nú orðinn frískur að nýju. Það er ein skýring en staðreyndin einfaldlega sú að ekki tekst að rekja öll smit. Sú er raunin að þessu sinni.

Í ljósi aðstæðna hvetur aðgerðastjórn íbúa til að gæta sérstaklega að sér næstu vikuna eða svo en þá eru tvær vikur liðnar frá því smit uppgötvaðist og mesta smithættan liðin hjá.

Þá áréttar hún mikilvægi þess að ef við höfum sýkingareinkenni t.d.; kvef, hita, hálssærindi, beinverki, skert bragð- eða lyktarskin, niðurgang og uppköst, að halda sig þá heima og vera í sambandi við heilsugæsluna eða síma 1700 og fá ráðgjöf. Þetta á einnig við ef einkenni eru væg. Síðast en ekki síst að fara ALLS  EKKI á heilsugæslustöð, til tannlæknis, í búð, í klippingu o.s.frv. við slíkar aðstæður. 

Með samstilltu átaki og aðgæslu sem fyrr komumst við í gegnum þetta kóf.

Frétta og viðburðayfirlit