mobile navigation trigger mobile search trigger
05.05.2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 5. maí

Tveir eru nú í sóttkví á Austurlandi. Enginn er í einangrun. Í ljósi þess að fá smit hafa greinst í fjórðungnum, talsvert er frá síðasta smiti og fáir í sóttkví, mun daglegum tilkynningum aðgerðastjórnar nú hætt. Þær hafa verið sendar út á degi hverjum frá 26. mars.  Tilkynningar munu þess í stað sendar tvisvar í viku, á þriðjudögum og föstudögum. Komi smit upp á svæðinu verður það tilkynnt og eftir atvikum þráður daglegra tilkynninga tekinn upp að nýju. Vonum og vinnum áfram að því saman að til þess komi ekki.   

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi  5. maí

Frétta og viðburðayfirlit