mobile navigation trigger mobile search trigger
06.11.2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 6. nóvember

Tveir eru greindir með COVID smit á Austurlandi og báðir í einangrun og því óbreytt staða hvað það varðar. Lögreglan hefur undanfarið haldið upp öflugu eftirliti með að sóttvarnarreglum sé framfylgt og farið í fjölda verslana og veitingahúsa á Austurlandi. Í langflestum tilvikum hefur reglum þessum verið framfylgt í hvívetna og ábendingum lögreglu verið vel tekið. Lögreglan á Austurlandi mun áfram halda uppi reglubundnu eftirliti í þessum málaflokki.

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 6. nóvember

Aðgerðastjórn almannavarna á Austurlandi hefur fjallað um mikilvægi þess að gætt sé að því að nemendur grunn- og leikskóla, sem skipt er upp í hópa í skólunum, blandist ekki utan skipulagðs skólastarfs.  Í því sambandi er áréttað að á opnum leik,- spark- og íþróttvöllum sveitarfélaganna safnist ekki saman börn og ungmenni úr aðskildum hópum í skólastarfi.  Núverandi takmarkanir eru í gildi til 18. nóvember nk.  og er biðlað til forráðamanna barna að huga að mikilvægi þess árangurs sem vænst er.  Markmiðið er að ná tökum á útbreiðslu veirunnar til að koma daglegu lífi í eðlilegt horf eða eins nærri því og hægt er miðað við aðstæður.

Förum að sóttvarnarreglum og gerum þetta saman.

Frétta og viðburðayfirlit