mobile navigation trigger mobile search trigger
08.12.2020

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 8. desember

Enginn er með virkt COVID smit á Austurlandi. Aðgerðastjórn vekur athygli á nýjum sóttvarnareglum Heilbrigðisráðherra er taka gildi frá og með 10. desember næstkomandi til 12. janúar 2021. Helstu breytingar lúta að fjöldatakmörkunum barna og grímuskyldu þeirra, að sund- og baðstöðum, veitingastöðum og verslunum, íþróttaiðkun, menningarviðburðum  og jarðaförum. Í öllum tilvikum er um lítilsháttar rýmkun reglna að ræða. Íbúar eru hvattir til að kynna sér þessar reglur á vef stjórnarráðsins

Tilkynning frá aðgerðastjórn á Austurlandi 8. desember

Ljóst er miðað við daglegar tölur um fjölda smitaðra að þær reglur sem haldnar hafa verið í heiðri síðustu mánuði eru jafn áríðandi og áður. Að halda tveggja metra fjarlægð er jafn mikilvægt og fyrr, nota grímu þar sem hún er áskilin og gæta að handþvotti og sprittnotkun. 

 

Gerum þetta saman og komumst heil heim. Áfram við.

Frétta og viðburðayfirlit