mobile navigation trigger mobile search trigger
07.03.2020

Tilkynning: Hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð loka fyrir heimsóknir gesta

Tekin hefur verið sú ákvörðun að loka hjúkrunarheimilunum í Fjarðabyggð (Hulduhlíð og Uppsölum) fyrir heimsóknum ættingja og annarra gesta frá og með 7. mars þar til annað verður formlega tilkynnt. Ákvörðunin var tekin að höfðu samráði við Sóttvarnarlækni og Landlækni eftir að neyðarstigi almannavarna var lýst yfir. Er þetta gert til að fylgja eindregnum tilmælum þessara aðila sem eru í framvarðasveit Almannavarna Íslands.

Tilkynning: Hjúkrunarheimilin í Fjarðabyggð loka fyrir heimsóknir gesta

Nú er staðfest að smit vegna Kórónaveirunnar hafa borist á milli einstaklinga í þjóðfélaginu. Þar sem íbúar Hjúkrunarheimilana eru flestir aldraðir og/eða með ýmsa undirliggjandi sjúkdóma eru þeir í sérstökum áhættuhóp tengt því að veikjast alvarlega af Kórónaveirunni.

Leita þarf allra leiða til að draga úr þeirri hættu að íbúar heimilanna veikist af Kórónaveirunni. Okkur þykir mjög leitt að þurfa að taka svo stóra ákvörðun en þetta er gert með velferð íbúanna okkar í húfi og biðjum við fólk að sýna þessari ákvörðun virðingu og skilning. Það er ljóst að það getur reynst íbúa mjög erfitt að fá ekki heimsóknir frá ættingjum sínum og á sama hátt getur það reynst ættingjum íbúans mjög erfitt að heimsækja hann ekki.  Það er samt nauðsynlegt að grípa til þessarra ráðstafana til að koma í veg fyrir að íbúi veikist af veirunni og eins geta smit borist frá ættingjum eins íbúa til annars íbúa.

Jafnframt verður umferð annara gesta en nauðsynlegs starfsfólks á vakt, tökmörkuð inn á heimilið. Svo sem birgja með vörur, iðnaðarmenn og aðra sem þurfa að koma inn á heimilið.

Tilkynning til ættingja og íbúa Hulduhlidar.pdf

Tilkynning til ættingja og íbúa Uppsala.pdf

Frekari upplýsingar veitir Ragnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri, í síma 6983760 eða netfanginu ragnar.sigurdsson@hjukrunarheimili.is

Einnig er mikilvægt að fólk kynni sér upplýsingar og leiðbeiningar á vef Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is Þar eru greinargóðar upplýsingar og leiðbeiningar tengdar stöðu mála, en þær geta breyst frá degi til dags.

Frétta og viðburðayfirlit