mobile navigation trigger mobile search trigger
14.11.2023

Undirritun samnings um lengingu Strandarbryggju

Mánudaginn 13. nóvember var undirritaður samningur milli Fjarðabyggðarhafna og MVA ehf. um lengingu Strandarbryggju á Fáskrúðsfirði. 

Undirritun samnings um lengingu Strandarbryggju
Við undirritun samningsins, Jóna Árný, bæjarstjóri Fjarðabyggðar og Magnús Baldur Kristjánsson, framkvæmdastjóri MVA ehf.

Mun bryggjan breyta til muna aðstöðu til löndunar uppsjávarafla í fiskimjölsverksmiðju Loðnuvinnslunnar ásamt útskipun afurða frá fyrirtækinu.  Vinna við bryggjuna mun hefjast á næstu vikum og áætlað er að framkvæmdum verði lokið 15. júlí næstkomandi.

Frétta og viðburðayfirlit