Fimmtudaginn 23. mars verður opnað fyrir rafrænar umsóknir um vinnuskóla, störf flokkstjóra og sumarstörf þjónustumiðstöðva.
08.03.2017
Vinnuskóli, flokkstjórar og sumarstörf þjónustumiðstöðva 2017
![Vinnuskóli, flokkstjórar og sumarstörf þjónustumiðstöðva 2017 Vinnuskóli, flokkstjórar og sumarstörf þjónustumiðstöðva 2017](/media/9feb435acaf8a3d.jpg?w=600)
Nánari lýsingar á sumarstörfum og vinnuskóla:
Sumarstarfsmenn Þjónustumiðstöðva Fjarðabyggðar: 16 ára og eldri sem vinna við ýmis umhverfisverkefni hjá sveitarfélaginu. Verkefnin flokkast í tvennt: Grófari vinna er t.d. vélavinna eins og sláttur og orfun, undirbúningur fyrir malbikun, hellulögn ofl. Fín vinna er t.d. undirbúningur og viðhald blóma- og runnabeða, plöntun blóma og trjáa, tína rusl o.m.fl.