Fara í efni

Undir sömu stjörnu – Óperan í Eskifjarðarkirkju

Dags
25. október
Kl.
16:00 - 17:00
Staðsetning
Eskifjarðarkirkja
Nýstofnuð Ópera kemur fram í Eskifjarðarkirkju 25. október með söngdagskrána Undir sömu stjörnu. Viðburðurinn er hluti af opnunardagskrá Óperunnar, sem ferðast um landið með það að markmiði að ná til þjóðarinnar allrar.
Deildu

Söngvarar Óperunnar flytja nokkrar af fegurstu perlum óperusögunnar og leikarar Þjóðleikhússins, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Örn Árnason, leiða áhorfendur í gegnum söguna. Fróðleik og skemmtun er fléttað saman þegar saga óperunnar er rakin frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum.

Dagskráin sækir meðal annars innblástur í ástarstjörnu Jónasar Hallgrímssonar yfir Hraundranga og kvöldstjörnu Richards Wagners. Ólafur Egill Egilsson sér um handrit og leikstjórn og Richard Schwennicke er tónlistarstjóri.

Hægt er að nálgast miða á tix.is