Fara í efni

70 ára afmæli tónlistarkennslu í Neskaupstað

Dags
14. nóvember
Kl.
16:00 - 18:00
Staðsetning
Egilsbúð, Neskaupstað
Afmælistónleikar verða haldnir í Egilsbúð 14. nóvember klukkan 16:00 í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá upphafi tónlistarkennslu í Neskaupstað.
Deildu

Afmælistónleikar verða haldnir í Egilsbúð 14. nóvember í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá upphafi tónlistarkennslu í Neskaupstað.

Núverandi og fyrrverandi nemendur og kennarar Tónskóla Neskaupstaðar flytja fjölbreytta dagskrá. Einnig verða til sýnis ljósmyndir úr skólastarfinu frá ýmsum tímum og boðið verður upp á léttar veitingar að tónleikum loknum.

Öll eru velkomin að njóta tónlistar og rifja upp söguna með okkur.

Tónleikarnir eru styrktir af Fjarðabyggð og SÚN.