Áramótabrennum frestað vegna veðurs – nýjar dagsetningar og staðsetningar
Vegna slæmrar veðurspár hefur verið ákveðið að fresta eftirfarandi áramótabrennum. Brennurnar verða haldnar á sama stað og á sama tíma og áður var auglýst.
Nýársdagur, 1. janúar kl. 17:00
- Breiðdalsvík: malarsvæði sunnan við gámavöll
- Fáskrúðsfjörður: Sævarendi / Fjöruborð
- Reyðarfjörður: Hrúteyri
Þrettándinn, 6. janúar kl. 17:00
- Eskifjörður: malarsvæði móts við þorpið
- Norðfjörður: Utan við flugvöllinn
Stöðvarfjörður
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort fresta eigi brennum á Stöðvarfirði. Tilkynnt verður um það um leið og ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar verða birtar eftir því sem við á.
Áramótabrennur í Fjarðabyggð verða haldnar á gamlárskvöldi á eftirfarandi stöðum og tímum:
- Breiðdalsvík – 1. janúar malarsvæði sunnan við gámavöll kl. 17:00
- Stöðvarfjörður – á Melseyri ofan Birgisnes kl. 20:30
- Fáskrúðsfjörður – 1. janúar Sævarendi / Fjöruborð kl. 17:00
- Reyðarfjörður – 1. janúar á Hrúteyri kl. 17:00
- Eskifjörður – 6. janúar á malarsvæði móts við þorpið kl. 17:00
- Norðfjörður – utan við flugvöllinn kl. 17:00
Athugið að brennurnar er auglýstar með fyrirvara um að veður leyfi.
Brennugestir eru minntir á hlífðargleraugu og að óheimilt er að skjóta upp flugeldum og blysum við brennur.
Fari svo að aflýsa þurfi brennu eða breyta staðsetningu vegna veðurs verður það tilkynnt sérstaklega á heimasíðu Fjarðabyggðar og á FB síðu bæjarins.
Sjáumst sem flest í hátíðarskapi á gamlárskvöld.
