Beðið er síbreytilegt listaverk sem vex og þróast með þátttöku gesta. Gestum gefst kostur á að fylgjast með sköpunarferlinu og taka virkan þátt í því með því að koma með gamlar kennslu- og skólabækur sem verða hluti af verkinu.
Með hverju brotnu blaði sem bætist við tekur verkið á sig nýja mynd og vekur um leið spurningar um mörkin milli sköpunar og eyðileggingar – sköpunar- og skemmdarverka. Bækur eru teknar í sundur en öðlast um leið nýtt líf, hlutverk og merkingu sem hluti af stærri heild.
Sýningin, ásamt pop-up móttöku fyrir endurvinnslu kennslubóka, verður opin gestum 6.–30. september, alla daga kl. 10–12 og 13–16. Gestir eru hvattir til að koma með gamlar kennslu- og skólabækur, kynna sér verkefnið og taka þátt í áframhaldandi mótun verksins.
Verkið hlaut styrk úr Frumkvæðissjóði Sterks Stöðvarfjarðar árið 2026.
