Fara í efni

Bleikt kvöld Krabbameinsfélags Austfjarða

Dags
21. október
Kl.
19:00 - 23:00
Staðsetning
Skrúð á Fáskrúðsfirði
Krabbameinsfélag Austfjarða býður til Bleiks kvölds í Skrúð á Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 21. október. Við ætlum að eiga saman skemmtilegt kvöld þar sem tónlist, hlátur og góð samvera verða í fyrirrúmi. Öll velkomin.
Deildu

BLEIKT KVÖLD – Sjáðu þig 
Krabbameinsfélag Austfjarða býður til Bleiks kvölds í Skrúð á Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 21. október.
Við ætlum að eiga saman skemmtilegt kvöld þar sem tónlist, hlátur og góð samvera verða í fyrirrúmi. Öll velkomin.

Húsið opnar kl. 19:00 og tökum við á móti gestum með fordrykk og léttum veitingum.

Dagskrá hefst kl. 20:00.
Karítas Harpa og Aron Leví sjá um tónlistarflutning og koma okkur í rétta gírinn fyrir kvöldið.
Síðan tekur Snjólaug Lúðvíksdóttir við og sér um að kitla hláturtaugarnar með uppistandssýningunni MJÖG FÍN BARA.
Snjólaug er einn fremsti uppistandari landsins og í þessari splunkunýju sýningu talar hún um allt milli himins og jarðar: gamlar frumbyrjur, laxasæði, co-parenting lífið, gusur, Temu-fíkn móður sinnar, bragðarefi og margt, margt fleira.
Sýningin gæti móðgað fólk sem hrýtur hátt og elskar sund. 
Ókeypis aðgangur
Á staðnum verður baukur fyrir þau sem vilja styrkja starf Krabbameinsfélags Austfjarða með frjálsum framlögum.
Komdu og njóttu með okkur — góð tónlist, góður matur, hlátur og samvera á Bleiku kvöldi.
Sjáðu þig. 

 Skrúður, Fáskrúðsfirði
 Miðvikudagur 21. október
 Húsið opnar kl. 19:00
 Dagskrá hefst kl. 20:00
 Ókeypis aðgangur