Hvernig stuðlum við að aukinni farsæld barna og fjölskyldna á Austurlandi?
Farsældarráð á Austurlandi býður til Farsældardags fimmtudaginn 5. nóvember 2026 kl. 11:00–15:00 í Fróðleiksmolanum á Reyðarfirði, í húsnæði Austurbrúar. Súpa verður í boði í hádeginu.
Á Farsældardegi komum við saman, miðlum reynslu og ræðum hvernig við getum áfram styrkt samstarf og þjónustu í þágu barna og fjölskyldna á Austurlandi.
Á dagskrá verður meðal annars:
- Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Ragný Þóra Guðjohnsen frá Háskóla Íslands kynnir niðurstöðurnar.
- Farsældarlögin og innleiðing þeirra. Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældar- og barnaverndarsviðs Barna- og fjölskyldustofu, fjallar um lögin og innleiðingu þeirra.
- Reynsla af farsældarstarfi á Austurlandi. Umræður um starf tengiliða og málstjóra, reynslu þeirra af vinnu með börnum og fjölskyldum og þau tækifæri og áskoranir sem fylgja nýju skipulagi.
Dagurinn er tækifæri til að efla samtal, deila þekkingu og styrkja tengsl þeirra sem vinna að farsæld barna og fjölskyldna á Austurlandi.
