Fara í efni

Fullkomið farartæki - Hausttónleikar Nýdönsk

Dags
10. október
Kl.
21:00 - 22:00
Staðsetning
Frystihúsið Breiðdalsvík
Hljómsveitin Nýdönsk blæs til sinna árlegu hausttónleika. Eins og fullkomið farartæki brunar sveitin áfram á vegum tónlistarinnar og sér ekki fyrir endann á ævintýrinu endalausa.
Deildu

Hljómsveitin Nýdönsk blæs til sinna árlegu hausttónleika. Eins og fullkomið farartæki brunar sveitin áfram á vegum tónlistarinnar og sér ekki fyrir endann á ævintýrinu endalausa.

Á síðasta ári sendi hljómsveitin frá sér hljómplötuna Í raunheimum sem innihélt meðal annars lag ársins. Á tónleikunum mun Nýdönsk leika sín þekktustu lög auk þess sem nýjasta efnið slæðist með.

Meðlimir hljómsveitarinnar eru þeir Daníel Ágúst Haraldsson, Björn Jr. Friðbjörnsson, Jón Ólafsson, Ólafur Hólm og Stefán Hjörleifsson. Sérlegir hjálparkokkar eru þeir Guðmundur Pétursson og Ingi Skúlason.
Viðburðurðurinn á facebook