Fara í efni

Gönguvikan " Á fætur í Fjarðabyggð" 2026

Dags
20. júní - 27. júní
Staðsetning
Fjarðabyggð
Göngu- og gleðivika fyrir alla fjölskylduna Á fætur í Fjarðabyggð
Deildu

Á fætur í Fjarðabyggð 2026

Göngu- og gleðivika fyrir alla fjölskylduna

20.–27. júní 2026

Mundu gönguskóna!

Laugardagur 20. júní

Kl. 10:00 – Göngu- og bátsferð á Barðsneshorn

Mæting við Safnahúsið, rauða húsið í miðbæ Neskaupstaðar.

Bátur flytur þátttakendur að Barðsnesi þar sem boðið er upp á mismunandi gönguleiðir við hæfi flestra. Gengið um Rauðubjörg, Mónes og Barðsneshorn með stórbrotnu útsýni og möguleika á steingervingaleit í fjörunni.

Leiðsögumaður: Sævar Guðjónsson, 698 6980

Verð: Fullorðnir 10.000 kr. og 16 ára og yngri 5.000 kr.

Skráning fyrir kl. 12:00 föstudaginn 19. júní hjá Sævari Guðjónssyni í síma 698 6980 eða á netfangið mjoeyri@mjoeyri.is.

Kl. 21:00 – Kvöldvaka í Randulffs-sjóhúsi á Eskifirði

Lokakvöldvaka Innsævis menningar- og listahátíðar Fjarðabyggðar.

Randulfarnir flytja lifandi tónlist.

Frítt inn.

Sunnudagur 21. júní

Kl. 10:00 – Ganga um Miðstrandarskarð milli Norðfjarðar og Mjóafjarðar

Mæting við minnisvarðann um snjóflóðin í Neskaupstað.

Gengið um Miðstrandarskarð, yfir Lokatind og niður Gilsárdal að Reykjum. Bátur flytur þátttakendur frá Reykjum að Brekku í Mjóafirði.

Fararstjóri: Sævar Guðjónsson, 698 6980

Verð: 7.000 kr.

Kl. 16:00 – Göngu- og söguferð um land Reykja í Mjóafirði

Mæting við höfnina í Mjóafirði.

Bátsferð yfir að Reykjum þar sem gengið verður um landareignina og sagðar sögur úr héraði.

Fararstjóri: Sævar Guðjónsson, 698 6980

Verð: Fullorðnir 5.000 kr. og 16 ára og yngri 2.500 kr.

Kl. 19:00 – Kvöldvaka á Sólbrekku í Mjóafirði

Lifandi tónlist, sögur og veitingar.

Mánudagur 22. júní

Kl. 10:00 – Innra Hólafjall, 1088 m

Mæting við Ytri Þverá innan við Eskifjörð.

Gengið um Harðskafa á eitt af fimm fjöllum Gönguvikunnar.

Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, 864 7694

Verð: 3.000 kr.

Kl. 17:30 – Fjölskylduganga að Hólatjörnum í Fannardal

Mæting innan við Naumamel.

Létt og falleg ganga að Hólatjörnum.

Fararstjóri: Þórður Júlíusson, 891 8036

Verð: 1.000 kr.

Kl. 20:00 – Kvöldvaka í Melhvammi

Lifandi tónlist og veitingar.

Þriðjudagur 23. júní

Kl. 10:00 – Hádegisfjall í Reyðarfirði, 809 m

Mæting við Fáskrúðsfjarðargöng, Reyðarfjarðarmegin.

Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, 864 7694

Verð: 3.000 kr.

Kl. 17:30 – Fjölskylduganga í Hólmanes

Mæting á Hólmahálsi.

Gengið um Hólmaborgir, Sauðahelli, Ögmundargat og Gránubás.

Fararstjóri: Inka landvörður, 662 8748

Verð: 1.000 kr.

Kl. 19:00 – Kvöldvaka á Borgarsandi

Lifandi tónlist, varðeldur og veitingar.

Miðvikudagur 24. júní

Kl. 10:00 – Goðaborg, 1030 m

Mæting við Fáskrúðsfjarðargöng, Fáskrúðsfjarðarmegin.

Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, 864 7694

Verð: 3.000 kr.

Kl. 18:00 – Fjölskylduganga út í Vattarnes

Mæting við afleggjarann að Vattarnesi.

Gengið að Vattarnesvita meðfram ströndinni.

Athugið að hundar eru ekki leyfðir í þessari ferð vegna viðkvæms fuglalífs.

Fararstjóri: Óðinn Logi, 847 4130

Verð: 1.000 kr.

Kl. 20:00 – Kvöldvaka í Vattarnesi

Lifandi tónlist og veitingar.

Fimmtudagur 25. júní

Kl. 10:00 – Flögutindur í Breiðdal, 918 m

Mæting við Flögufoss.

Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, 864 7694

Verð: 3.000 kr.

Kl. 18:00 – Fjölskylduganga um Streitishvarf

Mæting við afleggjarann að vitanum á Streitishvarfi.

Fararstjóri: Páll Baldursson, 896 6716

Verð: 1.000 kr.

Kl. 20:00 – Kvöldvaka á Breiðdalsvík

Lifandi tónlist og veitingar.

Föstudagur 26. júní

Kl. 10:00 – Goðatindur, 912 m

Mæting við skíðaskálann í Oddsskarði.

Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, 864 7694

Verð: 3.000 kr.

Kl. 14:00 – Fjölskylduganga á Sellátratind

Mæting við skíðaskálann í Oddsskarði.

Fararstjóri: Kamma Dögg Gísladóttir, 847 1690

Verð: 1.000 kr.

Kl. 20:00 – Sjóræningjakvöldvaka á Mjóeyri

Lifandi tónlist, varðeldur, fjársjóðsleit og fjölskylduskemmtun.

Laugardagur 27. júní

Kl. 10:00 – Gönguferð frá Fáskrúðsfirði til Stöðvarfjarðar

Mæting við endurvarpsstöðina sunnan Fáskrúðsfjarðar.

Fararstjóri: Kristinn Þorsteinsson, 864 7694

Verð: 3.000 kr.

Kl. 13:00 – Fjölskylduganga að Einbúanum og steinboganum í Álftafelli

Mæting við bílastæðið neðan við Jafnadal í Stöðvarfirði.

Fararstjóri: Sara Jakobsdóttir, 896 0349

Verð: 1.000 kr.

Kl. 20:00 – Lokakvöldvaka á Mjóeyri

Lifandi tónlist, varðeldur, veitingar og afhending viðurkenninga.

Kl. 22:00–01:00 – Sjóhúspartí í Randulffs-sjóhúsi

Lifandi tónlist og fjör.

18 ára aldurstakmark.

Frítt inn.

Gönguvikukort

Hægt er að kaupa Gönguvikukort sem veitir aðgang að öllum viðburðum vikunnar.

Verð: 25.000 kr.

Fyrir unga göngugarpa

Frítt er fyrir 16 ára og yngri í flestar göngur, í fylgd með fullorðnum.

Náttúrufræðinámskeið

22.–26. júní kl. 09:00–12:00

Náttúrufræðinámskeið fyrir börn 8–10 ára á vegum Náttúrustofu Austurlands og Ferðaþjónustunnar Mjóeyri.

Skráning í síma 477 1774 eða á netfangið na@na.is.

Börn sem taka þátt í öllum fjölskyldugöngum geta hlotið viðurkenninguna Göngugarpur Gönguvikunnar.