Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, flytur erindi um útfærslu fiskveiðilögsögunnar og átökin sem henni fylgdu.
Nýlega kom út bók hans Vald hinna veiku. Saga landhelgismálsins, 1971–1974, þar sem hann fjallar um útfærslu fiskveiðilögsögunnar í 50 sjómílur árið 1972 og baráttu Íslendinga fyrir yfirráðum yfir fiskimiðunum umhverfis landið.
Í erindinu leiðir Guðni gesti í gegnum þessa viðburðaríku tíma og segir frá því hvernig fámenn þjóð stóð vörð um mikilvæga auðlind gagnvart stærri og öflugri ríkjum. Sagan snertir sjávarbyggðir Austfjarða með beinum hætti, enda hefur sjávarútvegur lengi verið ein helsta undirstaða atvinnulífs á svæðinu.
Að viðburðinum standa Menningarstofa Fjarðabyggðar, Héraðsskjalasafnið í Neskaupstað og SÚN.
Öll eru velkomin á fróðlega og skemmtilega kvöldstund.
