Fara í efni

Hernámsæskan - Bókarkynning í Stríðsárasafninu

Dags
28. nóvember
Kl.
17:00 - 18:00
Staðsetning
Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði
Leifur Reynisson sagnfræðingur bregður nýju ljósi á sögu hernámsáranna í máli og myndum.
Deildu

Daglegt líf á Íslandi breyttist á svipstundu með tilkomu hersins og áhrifin á dægurmenninguna voru gríðarmikil. Flugvélagnýr skók bæi á sama tíma og ungmenni tyggðu tyggigúmmi og drukku kók. Nýr þjóðfélagsþegn varð til: unglingurinn. Leifur Reynisson sagnfræðingur segir frá ungmennum á stríðsárunum í máli og myndum. Þessu má engin áhugamanneskja um hernámsárin missa af. Íslenska stríðsárasafninu á Reyðarfirði, 28. nóvember kl 17:00. Aðgangur ókeypis