Hernámsdagurinn í ár verður haldinn hátíðlegur við Stríðsárasafnið laugardaginn 4. júlí. Á Hernámsdeginum er hernámi Breta á Reyðarfirði þann 1. júlí 1940 minnst. Dagskráin er fróðleg og skemmtileg fyrir alla aldurshópa: 14:00 Þóroddur Helgason leiðir sögugöngu frá Molanum upp að safni. Sögur sagðar úr hernáminu og bæjarsögunni. Þægileg og fróðleg ganga fyrir fólk á öllum aldri. 14:45 Súkkulaðikaka, kaffi og mjólk. 15:00 Harmonikkufélag Norðfjarðar leikur dægurlög frá stríðsárunum í Bragganum (eða á planinu ef veður leyfir) 15:30 Kristín Svava Tómasdóttir sagnfræðingur segir frá rannsóknum sínum á Jóhönnu Knudsen og Ástandinu. Í Bragganum. Jóhanna Knudsen ólst upp í Papósi og bjó um tíma á Fáskrúðsfirði áður en hún komst til manns og ára. Hún lærði hjúkrun og tók virkan þátt í félagsstörfum en á hernámsárunum var hún skipuð forstöðukona Ungmennaeftirlitsins. Í starfi sínu leiddi hún einhverjar umfangsmestu persónunjósnir Íslandssögunnar og stóð fyrir hatrammri baráttu gegn samneyti hers og (kven-)þjóðar. Kristín Svava hefur m.a. birt rannsóknarniðurstöður sínar í bókinni Fröken Dúllu sem kom út fyrir síðustu jól. 16:15 Háðsádeilukvikmyndin JoJo Rabbit sýnd í bíóbragganum. Ath. að myndin er ekki við hæfi ungra barna.
Hernámsdagurinn 2026
Dags
4. júlí
Kl.
14:00 - 18:00
Staðsetning
Íslenska stríðsárasafnið, Reyðarfirði
Hernámsdagurinn í ár verður haldinn hátíðlegur við Stríðsárasafnið laugardaginn 4. júlí.
