Fara í efni

Hvanndalsbræður stíga á svið í Frystihúsinu

Dags
12. september
Kl.
20:00 - 22:00
Staðsetning
Frystihúsið, Sólvöllum 23, Breiðdalsvík
Tónleikaröðin Víkurvaki heldur áfram í Frystihúsinu á Breiðdalsvík laugardaginn 12. september þegar Hvanndalsbræður stíga þar á svið.
Deildu

Tónleikaröðin Víkurvaki heldur áfram í Frystihúsinu á Breiðdalsvík laugardaginn 12. september þegar Hvanndalsbræður stíga þar á svið.

Fyrstu tónleikar raðarinnar fóru fram í vor þegar Hipsumhaps lék fyrir fullu húsi og skapaði frábæra stemningu. Nú er komið að Hvanndalsbræðrum, sem heimsækja Breiðdalsvík í fyrsta sinn.

Hljómsveitin er þekkt fyrir líflega tónleika þar sem tónlist, sögur og sprell blandast saman. Á tónleikunum flytja Hvanndalsbræður fjölbreytt lög frá tæplega 25 ára ferli sínum og segja sögurnar á bak við sum þeirra – ef þeir muna þær.

Upphitun og fordrykkir verða á Beljanda frá kl. 18:00 og Frystihúsið opnar kl. 20:00.

Miðaverð er 6.900 krónur og miðar eru seldir á vef Frystihússins.

Íbúar og gestir eru hvattir til að tryggja sér miða og taka þátt í eftirminnilegu tónleikakvöldi á Breiðdalsvík.

Viðburður á facebook