Íþróttavika Evrópu verður haldin í Fjarðabyggð dagana 23.–30. september. Boðið verður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá fyrir fólk á öllum aldri.
Allir viðburðir vikunnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu og frítt verður í allar sundlaugar Fjarðabyggðar alla vikuna.
Miðvikudagur 23. september
- Kl. 10:30–12:00 – 60+ gusa með Bobbu í Stefánslaug í Neskaupstað.
- Kl. 10:30–12:00 – 60+ gusa með Eygló í Sundlaug Eskifjarðar.
- Kl. 16:00–18:00 – Prófaðu padel hjá Padel Palma á Reyðarfirði.
- Kl. 17:00–18:00 – Spinning í Glaðheimum á Fáskrúðsfirði.
- Kl. 17:00–18:30 – Sjósund við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
- Kl. 17:00–18:00 – Göngufótbolti á fótboltavellinum í Neskaupstað.
Fimmtudagur 24. september
- Kl. 16:00–18:00 – Fjölskyldupadel hjá Padel Palma á Reyðarfirði.
- Kl. 16:30–17:30 – Opinn HYROX-tími og kynning í Eyrinni á Reyðarfirði.
- Kl. 16:30–17:30 – Sundæfing fyrir fullorðna í Stefánslaug í Neskaupstað.
- Kl. 17:00–18:30 – Sjósund við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
- Kl. 17:00–18:00 – Yoga & Sport í Vallarhúsinu á Eskifirði.
- Kl. 17:30–18:30 – Foreldra- og kynningarfundur skíða- og brettadeildar Leiknis í stofu 10 í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.
- Kl. 18:00–19:30 – Gusa með Bobbu í Stefánslaug í Neskaupstað.
- Kl. 20:00–22:00 – Brennómót félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar í Íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði. Skráning er nauðsynleg.
Föstudagur 25. september
- Kl. 10:30–12:00 – 60+ gusa með Bobbu í Stefánslaug í Neskaupstað.
- Kl. 12:00–13:00 – Göngufótbolti í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði.
- Kl. 16:00–20:00 – Byrjendamót hjá Padel Palma á Reyðarfirði.
- Kl. 17:00–18:30 – Sjósund við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
- Kl. 17:00 – Fyrirlesturinn „Það er pláss – saman gegn félagslegri einangrun“ fyrir fólk 60 ára og eldra í Safnaðarheimilinu í Neskaupstað.
- Kl. 18:00–19:30 – Gusa með Eygló í Sundlaug Eskifjarðar.
Laugardagur 26. september
- Kl. 9:30–10:15 – Íþróttaskóli fyrir börn fædd 2023–2024 í Íþróttahúsinu í Neskaupstað.
- Kl. 10:00–11:00 – Íþróttaskóli fyrir leikskólabörn í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði.
- Kl. 10:00–11:00 – Íþróttaskóli fyrir leikskólabörn í Íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði.
- Kl. 10:15–11:00 – Íþróttaskóli fyrir börn fædd 2021–2022 í Íþróttahúsinu í Neskaupstað.
- Kl. 11:00–12:00 – Zumba með Lilju í Íþróttahúsinu á Breiðdalsvík.
- Kl. 12:00–13:00 – Opinn styrktar- og þrektími í Nesheimum í Neskaupstað.
- Kl. 12:00–14:00 – Teymingar fyrir börn hjá Hestamannafélaginu Blæ í Neskaupstað.
- Kl. 13:00 – Hringleikarnir í Íþróttahúsinu á Reyðarfirði.
- Kl. 13:00–14:00 – Opið hús hjá Padel Palma á Reyðarfirði.
- Kl. 14:00–16:00 – Framhaldsmót í padel hjá Padel Palma á Reyðarfirði.
- Kl. 16:00–18:00 – Rafíþróttir fyrir börn á grunnskólaaldri í Austrahúsinu á Eskifirði.
- Kl. 17:00–18:30 – Kajaknámskeið hjá Siglingaklúbbnum við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
- Frítt í golf hjá Golfklúbbnum GKF á Reyðarfirði.
Sunnudagur 27. september
- Kl. 17:00–18:30 – Kajaknámskeið hjá Siglingaklúbbnum við Strandgötu 7 á Eskifirði. Börn 16 ára og yngri þurfa að vera í fylgd með fullorðnum.
Mánudagur 28. september
- Kl. 6:00–7:00 – Spinning í Glaðheimum á Fáskrúðsfirði.
- Kl. 16:00–17:00 – Stelpuæfing hjá Padel Palma á Reyðarfirði.
- Kl. 16:30–17:30 – Sundæfing fyrir fullorðna í Stefánslaug í Neskaupstað.
- Kl. 17:00–18:00 – Kvennapadel hjá Padel Palma á Reyðarfirði.
- Kl. 17:00–18:00 – Hlaupaæfing með Gunnari í Eyrinni á Reyðarfirði.
- Kl. 18:00–19:30 – Gusa með Bobbu í Stefánslaug í Neskaupstað.
- Kl. 18:00–19:30 – Gusa með Eygló í Sundlaug Eskifjarðar.
Þriðjudagur 29. september
- Kl. 8:00–16:00 – Mælingar fyrir þátttakendur Janusar í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði.
- Kl. 17:00 – Fjölskylduganga frá Grunnskóla Stöðvarfjarðar.
- Kl. 17:00–18:00 – Yoga & Sport í Vallarhúsinu á Eskifirði.
- Kl. 18:00–20:00 – Finndu spilafélaga úr þínum bæ hjá Padel Palma á Reyðarfirði.
- Kl. 18:00 – Fyrirlesturinn „Eldumst hraust“ fyrir fólk 60 ára og eldra í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði.
Miðvikudagur 30. september
- Kl. 16:00–18:00 – Opið hús – padel fyrir alla hjá Padel Palma á Reyðarfirði.
- Kl. 16:00–18:00 – Rafíþróttir fyrir börn á grunnskólaaldri í Austrahúsinu á Eskifirði.
- Kl. 16:00–19:00 – Opið hjá Fönn hjólafélagi í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað.
- Kl. 17:00–19:00 – Golfklúbbur Norðfjarðar verður með golf á fótboltavellinum í Neskaupstað.
Opnar æfingar íþróttafélaga
Íþróttafélög víðs vegar um Fjarðabyggð verða með opnar æfingar í íþróttavikunni:
- Leiknir á Fáskrúðsfirði – blak og filmleikar.
- KFA – opnar fótboltaæfingar í öllum flokkum.
- Þróttur í Neskaupstað – blak og sund.
- Austri á Eskifirði – sund.
- Valur á Reyðarfirði – glíma og körfubolti.
- Hrafnkell Freysgoði á Breiðdalsvík – karate.
Nánari tímasetningar má finna í tímatöflum viðkomandi íþróttafélaga.
