Listaakademía Verkmenntaskóla Austurlands og Leikfélag Norðfjarðar setja upp leikritið Þrek & tár í leikstjórn Árna Grétars Jóhannssonar. Þrek & tár er eftir Ólaf Hauk Símonarson og byggir á þekktum dægurlögum sem nutu mikilla vinsælda á þeim tíma sem verkið gerist, um og upp úr árinu 1961. Í leikritinu er fylgst með músíkalskri kaupmannsfjölskyldu í Vesturbæ Reykjavíkur sem tekst á við margvíslegar áskoranir daglegs lífs á sama tíma og draugar fortíðarinnar sækja að. Verkið á erindi við áhorfendur á öllum aldri, enda fjallar það á áhrifaríkan hátt um mannleg samskipti og tilfinningar – ást og gleði, afbrýðisemi og vonbrigði, drauma, sigra og ósigra. Tónlistin gegnir lykilhlutverki í frásögninni og skapar lifandi og hlýja stemningu sem endurspeglar tíðarandann. Öll eru hjartanlega velkomin að eiga með okkur góða stund í Egilsbúð, Neskaupstað. Miðapantanir á va@va.is eða í síma 477-1620 milli kl. 8-14 á virkum dögum. Miðaverð 4900 kr. (3000 kr. fyrir 20 ára og yngri) Sýningar: 11. mars kl. 20:00 – frumsýning 13. mars kl. 20:00 19. mars kl. 20:00 20. mars kl. 20:00 21. mars kl. 20:00 24. mars – kl. 14:00 sýning fyrir VA
Leikritið Þrek og tár
Dags
11. mars kl. 20:00 -
24. mars kl. 14:00
24. mars kl. 14:00
Staðsetning
Egilsbúð
Listaakademía Verkmenntaskóla Austurlands og Leikfélag Norðfjarðar setja upp leikritið Þrek & tár í leikstjórn Árna Grétars Jóhannssonar.
