Fara í efni

Leirlistasmiðja með Antoníu Berg: staðbundinn leir, jarðefni og útibrennsla

Dags
26. júní kl. 18:00 -
8. september kl. 21:00
Staðsetning
Sköpunarmiðstöðin / Fish Factory
(IS) / english below Leirlistasmiðja með Antoníu Berg Staðbundinn leir, jarðefni og útibrennsla ----- Ceramics Workshop with Antonía Berg Local Clay, Minerals and Outdoor Firing
Deildu

(IS) / english below Verið velkomin á leirlistasmiðju í Sköpunarmiðstöðinni á Stöðvarfirði undir leiðsögn leirkerasmiðsins og myndlistarkonunnar Antoníu Berg. Námskeiðið samanstendur af tveimur sjálfstæðum vinnustofum og sameiginlegri útibrennslu í september. Hægt er að taka þátt í einni vinnustofu eða báðum, en þátttakendur úr fyrri smiðjum geta komið með verkin sín í útibrennsluna. Dagsetningar: 26. júní – 18:00-21:00 - Leir og jarðefni úr nærumhverfinu 3 klst. vinnustofa þar sem unnið verður með leir frá Stöðvarfirði og Egilsstöðum, sand, steina og önnur staðbundin efni. 25. ágúst – 18:00-21:00 - Berunesleir, hveraleir, jökulleir og staðbundin efni 3 klst. vinnustofa þar sem þátttakendur kynnast ólíkum íslenskum jarðefnum og gera tilraunir með efni, form og yfirborð. 8. september – Sameiginleg útibrennsla Útibrennsla / holu- eða tunnubrennsla þar sem unnið verður með glerung, lífræn efni og efnivið úr nærumhverfinu. Námskeiðið leggur áherslu á sjálfbæra nálgun í leirlist, tengingu við landslagið og skapandi möguleika staðbundinna jarðefna. Antonía Berg er leirkerasmiður og myndlistarkona, stofnandi og rekstrarstjóri FLÆÐI listafélags og MÓR leirkerasmiðju í Hafnarhúsi í Reykjavík. Hún hefur unnið að rannsóknum á hveraleir, jökulleir og öðrum íslenskum jarðefnum á Íslandi og Grænlandi, og á rætur að rekja austur á Berunes í Berufirði. Verð: 4.000 kr. á mann Innifalið er þátttaka í valinni vinnustofu og sameiginlegri útibrennslu í september. Staðsetning: Sköpunarmiðstöðin / Fish Factory, Stöðvarfirði Fjöldi þátttakenda: Takmarkaður fjöldi plássa Skráning og nánari upplýsingar: contact@fishfactory.is (EN) Ceramics Workshop with Antonía Berg: Local Clay, Minerals and Outdoor Firing Join us at the Fish Factory in Stöðvarfjörður for a ceramics workshop series led by ceramic and visual artist Antonía Berg. The series includes two independent hands-on workshops and a shared outdoor firing in September. You can join one or both workshops, and participants from the earlier sessions will be able to bring their works to the outdoor firing. Dates: 26 June – 18:00-21:00 - Clay and minerals from the local environment A 3-hour workshop working with clay from Stöðvarfjörður and Egilsstaðir, together with sand, rocks and other local materials. 25 August – 18:00-21:00 - Berunes clay, geothermal clay, glacial clay and local materials A 3-hour workshop exploring different Icelandic natural materials through experiments with material, form and surface. 8 September – Communal outdoor firing Outdoor firing / pit or barrel firing, using glaze, organic materials and locally sourced elements. The workshop focuses on sustainable approaches to ceramics, connection to landscape, and the creative potential of local materials. Antonía Berg is a ceramic artist and visual artist, founder and director of FLÆÐI Art Collective and MÓR Ceramic Studio in Hafnarhús, Reykjavík. Her practice focuses on local materials, sustainable craft, geothermal clay, glacial clay and the relationship between ceramics and landscape. Antonía has roots in Berunes in Berufjörður, East Iceland. Price: 4,000 ISK per person The price includes participation in the selected workshop and the communal outdoor firing in September. Location: Fish Factory / Sköpunarmiðstöðin, Stöðvarfjörður Spaces: Limited availability Registration and more information: contact@fishfactory.is