Fara í efni

Ljósmyndasmiðja í Þórsmörk

Dags
21. mars
Kl.
14:00 - 17:00
Staðsetning
Þórsmörk – Þiljuvellir 11, Neskaupstað
Laugardaginn 21. mars mun listakonan Margaux Fievet, sem dvelur í listamannadvöl í Þórsmörk, bjóða áhugasömum um ljósmyndun að taka þátt í ljósmyndasmiðju um líkams- og skynjunarvakningu.
Deildu

Vinnustofan hefst á kynningu og æfingum sem eiga að að virkja líkamann og örva skynfærin – aðferð sem Margaux notar í eigin listsköpun áður en hún hefst handa við ljósmyndun.

Í seinni hluta vinnustofunnar, ef veður leyfir, mun hópurinn fara í stutta göngu til að taka ljósmyndir í nærumhverfinu. Þátttakendur eru hvattir til að koma með eigin myndavélar, en einnig verður myndavél til staðar sem þátttakendur geta prófað. Margaux mun deila myndunum með þátttakendum þegar þær hafa verið framkallaðar.

Þátttakendur eru hvattir til að klæðast þægilegum fatnaði sem hentar fyrir léttar líkamsæfingar og taka með sér hlý föt fyrir þann tíma sem varið verður utandyra við myndatöku.