Orkuskot er fundaröð Austurbrúar þar sem orkutengd málefni eru tekin fyrir á mannamáli. Fimm fundir verða haldnir víðs vegar um Austurland í haust og verður ólíkt viðfangsefni á dagskrá hverju sinni. Nánari upplýsingar á austurbru.is
Orkuskot - Rafvæðing smábáta
Dags
1. september
Kl.
16:00 - 18:00
Staðsetning
Tónspil, Neskaupstaður
Fyrsta Orkuskot haustsins verður haldið í Tónspili í Neskaupstað 1. september kl. 16. Þar fjallar Kolbeinn Óttarsson Proppé, framkvæmdastjóri Grænafls, um rafvæðingu smábáta og þau tækifæri sem felast í orkuskiptum minni fiskiskipa.
