Fara í efni

Rithöfundalestin

Dags
25. nóvember - 29. nóvember
Staðsetning
Fjarðabyggð
Rithöfundalestin fer um Austurland 25. – 29. nóvember. Í ár verða í lestinni Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Benný Sif Ísleifsdóttir, Skúli Björn Gunnarsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir auk innfæddra höfunda.
Deildu

Rithöfundalestin fer um Austurland dagana 25.–29. nóvember með bókahátíðir, upplestra og ritsmiðjur fyrir börn. Í Fjarðabyggð verður hún á Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og í Neskaupstað. Höfundarnir heimsækja einnig skóla og dvalarheimili.

Gestir fá tækifæri til að kynnast jólabókunum, hitta höfundana og spjalla um bækur. Á viðkomustöðum verða einnig kynntar bækur sem tengjast Austurlandi. Hægt verður að kaupa bækur á staðnum og fá þær áritaðar.

Í lestinni verða Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Benný Sif Ísleifsdóttir, Skúli Björn Gunnarsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir. Á einstökum viðkomustöðum bætast í hópinn Karólína Rós Ólafsdóttir, Leifur Helgi Konráðsson, Sveinn Snorri Sveinsson, Tinna Guðmundsdóttir, Ína Dagbjört Gísladóttir fyrir hönd Stefaníu Guðbjargar Gísladóttur, Adda Sigurjóns og Særún Hlín Laufeyjardóttir.

Dagskrá

Miðvikudagur 25. nóvember

  • Kl. 15:00 – Reyðarfjörður: Ritsmiðja barna á Bókasafni Reyðarfjarðar.
  • Kl. 17:00 – Fáskrúðsfjörður: Ritsmiðja barna á Bókasafni Fáskrúðsfjarðar.

Fimmtudagur 26. nóvember

  • Kl. 16:00 – Vopnafjörður: Barna- og ungmennaupplestur á Bókasafni Vopnafjarðar.
  • Kl. 20:00 – Vopnafjörður: Bókahátíð í Kaupvangi.

Föstudagur 27. nóvember

  • Kl. 16:30 – Djúpivogur: Bókahátíð í Faktor brugghúsi.
  • Kl. 20:00 – Fáskrúðsfjörður: Bókahátíð í Franska safninu.

Laugardagur 28. nóvember

  • Kl. 13:00 – Neskaupstaður: Barna- og ungmennaupplestur í Dalahöllinni.
  • Kl. 14:00 – Neskaupstaður: Bókahátíð í Dalahöllinni.
  • Kl. 17:00 – Reyðarfjörður: Hernámsæskan – bókarkynning í Stríðsárasafninu.
  • Kl. 20:00 – Seyðisfjörður: Bókahátíð í Skaftfelli.

Sunnudagur 29. nóvember

  • Kl. 11:00 – Egilsstaðir: Barna- og ungmennaupplestur á Bókasafni Múlaþings á Egilsstöðum.
  • Kl. 13:00 – Fljótsdalur: Grýlugleði og jólakattaritsmiðja.
  • Kl. 15:00 – Fljótsdalur: Bókahátíð á Skriðuklaustri, einnig í beinu streymi.

Aðstandendur og stuðningsaðilar

Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.

Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Bókasafnasjóðs, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, Brims, Nestaks, Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað, Bílaleigu Akureyrar, Gistihússins á Egilsstöðum og bókaforlaganna Benedikts, Forlagsins, Bókabeitunnar og Orðs og lystar.