Fara í efni

Ritlistarsmiðjur með Bergrúnu Írisi

Dags
25. nóvember
Kl.
15:00 - 16:00
Staðsetning
Bókasafn Reyðarfjarðar, Bókasafn Fáskrúðsfjarðar
Hvaðan koma hugmyndir að sögum, hvernig verða persónur til og þurfa allar sögur að enda vel? Þessum spurningum og fleirum verður velt upp í ritlistarsmiðjum sem verðlaunarithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir leiðir á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 25. nóvember. Í smiðjunum fá þátttakendur að spreyta sig á skapandi skrifum og persónusköpun undir leiðsögn Bergrúnar, sem hefur getið sér gott orð fyrir barnabækur sínar, bæði sem höfundur og myndhöfundur.
Deildu

Hvaðan koma hugmyndir að sögum, hvernig verða persónur til og þurfa allar sögur að enda vel? Þessum spurningum og fleirum verður velt upp í ritlistarsmiðjum sem verðlaunarithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir leiðir á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 25. nóvember.

Í smiðjunum fá þátttakendur að spreyta sig á skapandi skrifum og persónusköpun undir leiðsögn Bergrúnar, sem hefur getið sér gott orð fyrir barnabækur sínar, bæði sem höfundur og myndhöfundur. 

Smiðjurnar fara fram á bókasöfnunum á Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði og eru öllum opnar. Þátttaka er án endurgjalds en nauðsynlegt er að skrá sig með tölvupósti á menningarstofa@fjardabyggd.is.

Ritlistarsmiðjur miðvikudaginn 25. nóvember

  • Bókasafnið á Reyðarfirði: kl. 15:00
  • Bókasafnið á Fáskrúðsfirði: kl. 17:00