Hátíðarhöld Sjómannadagsins í Fjarðabyggð 2026
Neskaupstaður
Fimmtudagur 4. júní
Kl. 11:45–13:30 Pizzahlaðborð á Beituskúrnum, matseðill frá kl. 14:00.
Kl. 21:00 Tónspil: Tríó Mikaels Mána. Með honum er stjörnubassaleikarinn Henrik Linder, Dirty Loops, og trommuleikarinn Magnús Trygvason Elíassen, ADHD og Moses Hightower. Miðaverð 3.900 kr.
Kl. 22:00 Júlíus Óli í Beituskúrnum.
Föstudagur 5. júní
Kl. 10:00 Miðbærinn skreyttur og fánar dregnir að húni.
Kl. 11:45–13:30 Pizzahlaðborð á Beituskúrnum.
Kl. 12:30–15:00 Umhverfisráðstefna Austurlands: Horfum til sjávar; orkuskipti í sjávarútvegi á vegum Austurbrúar. Auglýst nánar.
Kl. 14:00–03:00 Beituskúrinn í fullri drift.
Kl. 20:00–23:00 Tónleikar unga fólksins á vegum Menningarstofu í Egilsbúð. 3.000 kr. inn. Miðar á Tix.is og við hurð. Fram koma Lottó, Alaska1867, CYBER og DJ Mellí.
Kl. 23:00 DJ Mellí í Beituskúrnum.
Laugardagur 6. júní
Kl. 10:00–12:00 Hópsigling Norðfirska flotans. Allir velkomnir. Talsamband á rás 12.
Kl. 10:00–17:00 Nesbær kaffihús – góðgæti að hætti hússins.
Kl. 11:30 „Bröns“ á Beituskúrnum.
Kl. 13:00 Kappróður og hoppikastalar á bryggjunni.
Kl. 15:00 Leikur KFA – KFG á SÚN-vellinum. Frítt á leikinn í boði SVN.
Kl. 19:00 Hátíðarkvöldverður sjómanna á Hildibrand. Skráning á hildibrand@hildibrand.is.
Kl. 23:00–02:00 Dansleikur með Stuðlabandinu. 4.000 kr. inn og allur aðgangseyrir rennur beint til björgunarsveitarinnar Gerpis.
Sunnudagur 7. júní
Kl. 09:30 Skip og bátar draga íslenska fánann að húni. Bæjarbúar eru hvattir til að flagga sem víðast.
Kl. 10:00 Sjómannadagsmót GN og Gjögurs á Norðfjarðarvelli.
Kl. 11:00 Dorgveiðikeppni fyrir 12 ára og yngri á Bæjarbryggjunni. Pylsur að hætti Jóns Gunnars í boði SVN. Þátttakendur skulu vera í björgunarvestum og mæta vel fyrir tímann. Harmonikkufélag Norðfjarðar spilar lög við hæfi.
Kl. 11:00–17:00 Heitt á könnunni í Nesbæ.
Kl. 12:00 Leikhópurinn Lotta – Söngvasyrpa í Egilsbúð að lokinni dorgveiði.
Kl. 14:00 Hátíðarmessa í Norðfjarðarkirkju og heiðrun sjómanna. Séra Benjamín Hrafn Böðvarsson þjónar fyrir altari. Kór Norðfjarðarkirkju syngur undir stjórn Kaido Tani. Andri Snær flytur harmonikkutóna. Sjómannalögin sungin. Að messu lokinni verður blómsveigur lagður að minningarreit um óþekkta sjómanninn og nýr minningarreitur vígður.
Kl. 14:30–18:00 Kaffisala Gerpis að Nesi. Allur ágóði rennur til björgunarstarfa sveitarinnar.
Kl. 15:30 Glens og gaman við sundlaugina: Reiptog, koddaslagur og fleira. Skráning hjá Dóra Sturlu í síma 868 3513. Verðlaunaafhendingar.
Hvetjum alla sem hlotið hafa heiðursmerki Sjómannadagsins til þess að bera það.
Sjómannadagsráð Neskaupstaðar og samstarfsaðilar: Björgunarsveitin Gerpir, Haki, SÚN, SVN, Hildibrand, G. Skúlason og Hafnarsjóður Fjarðabyggðar.
Allar fyrirspurnir sendist á sjoradnes@gmail.com.
Kaupið merki dagsins!
Eskifjörður
Fimmtudagur 4. júní
Fjör á Eyrinni
Kl. 16:00–18:30 Siglingaklúbbur Austurlands leyfir gestum að prófa kajaka, seglbáta og fleira.
Björgunarsveitin Brimrún verður með báta og býður börnum í ferð um fjörðinn.
Grillaðir Fossburgers handa öllum í boði Eskju.
Sjósund fyrir þá sem þora og heiti potturinn á eftir fyrir sundgarpana.
Föstudagur 5. júní
Kl. 17:00 Gamli Barnaskólinn á Eskifirði. Óður til niðarins – sýningaropnun. Listamenn: Magnús Pálsson, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Tinna Guðmundsdóttir, Vikram Pradhan, Kata Jóhanness og Linus Lohman.
Kl. 17:00 Randulffssjóhús opnar fyrir sumarið.
Kl. 18:00–20:00 Sundlaugadiskó og froðupartý í sundlauginni. Allir að mæta með góða skapið, uppblásnu dýnurnar og sólstólana.
Kl. 21:00 PubQuiz í Randulffssjóhúsi. Bjórmatur í boði á meðan PubQuiz stendur yfir.
Laugardagur 6. júní
Kl. 11:00 Dorgveiðikeppni á frystihúsbryggju. Verðlaun fyrir stærsta, ljótasta og furðulegasta fiskinn eða hlutinn. Skylda er að vera í vesti og í fylgd með fullorðnum. Vesti verða á staðnum.
Kl. 13:00–17:00 Sjóminjasafnið opið, frítt inn.
Kl. 13:00 Fjórðungskeppnin 2026, þrautakeppni og afþreying á Frystihúsbryggjunni. Þar verður hægt að fara í þrautabrautir, kappróður, keppni í sjómann og fleira.
Kl. 17:00–20:00 Tónleikar á Eskjutúninu. Frítt í boði Eskju. Fram koma Jónsi, Matti Matt, Hildur Magg og Páll Óskar.
Kl. 20:30–22:30 Heima í stofu-tónleikar í garðinum hjá Valla og Elínu við hliðina á grunnskólanum. Ebba Sig verður með uppistand og fram koma Júlíus Óli, Jónsi, Matti Matt og Hildur Magg. Athugið að takmarkað sætapláss er í boði. Frír aðgangur.
Kl. 21:00 Partybingo Tony & Svens í Valhöll. 4.500 kr.
Kl. 23:00 DJ TonyTjokko hitar upp fyrir Pál Óskar. Frítt inn í boði Eskju.
Kl. 00:00–03:00 Dansleikur með Páli Óskari. Frítt inn í boði Eskju.
Sunnudagur 7. júní
Kl. 11:00 Sjómannamessa í Eskifjarðarkirkju. Séra Benjamín Hrafn þjónar fyrir altari.
Kl. 12:00 Athöfn við minnisvarðann um drukknaða sjómenn. Sjómaður heiðraður.
Kl. 13:00–17:00 Sjóminjasafnið opið, frítt inn.
Kl. 13:00–17:00 Myndlistafélagið með opið hús í útenda Valhallar.
Kl. 13:00–17:00 Fjölskyldudagskrá á Eskjutúninu. Frítt í hoppukastala. Lalli töframaður og Jónsi skemmta börnunum.
Kl. 15:00–17:00 Slysavarnadeildin Hafrún verður með fríar kaffiveitingar í Valhöll í boði Eskju.
Kl. 16:00 Opnun sjómyndasýningarinnar Kringum Gerpi í sýningarsalnum á efri hæð Randulffssjóhúss. Gjaldfrjálst.
Sölutjöld eru velkomin alla helgina. Hafið samband í gegnum Facebook-síðuna Sjómannadagurinn á Eskifirði fyrir nánari upplýsingar.
Athugið að skylt er að hafa leyfi til veitingasölu.
Styrktaraðilar Sjómannadagsins eru Eskja og Fjarðabyggðarhafnir.
Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðunni Sjómannadagurinn á Eskifirði.
Fáskrúðsfjörður
Laugardagur 6. júní
Kl. 11:00 Sigling með Ljósafellinu og Hoffelli.
Kl. 11:00–13:30 Loðnuvinnslan býður gestum að koma um borð í nýtt Ljósafell SU-70 ásamt því að skoða nýtt flokkunar- og flökunarhús félagsins sem er í byggingu. Boðið verður upp á léttar veitingar og tónlist.
