Fara í efni

Þjóðsögur (Bókasafnið í Neskaupstað) – með sagnaþulunni Berglind Ósk

Dags
26. október
Kl.
16:00 - 17:00
Staðsetning
Bókasafnið í Neskaupstað
Komið og hlustið á spennandi og dularfullar þjóðsögur í notalegri stemningu á bókasafninu!
Deildu

Sagnaþulan Berglind Ósk leiðir okkur inn í heim íslenskra þjóðsagna þar sem huldufólk, draugar og aðrar kynjaverur leynast á hverju horni. Tilvalin stund fyrir alla sem hafa gaman af góðum sögum, sérstaklega í skammdeginu þegar myrkrið færist yfir.

26. október, kl. 16:00 – Bókasafnið í Neskaupstað
27. október, kl. 16:00 – Bókasafnið á Stöðvarfirði

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin!