Þorrablót Breiðdælinga verður haldið í Frystihúsinu á Breiðdalsvík þann 14. febrúar. Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00. Rögnvaldur Gáfaði sér um veislustjórn og hljómsveitin Selfoss frá Reyðarfirði sér um að halda uppi stuðinu að borðhaldi loknu.
Miðaverð í forsölu er 13.400 kr.
Hægt er að kaupa miða á frystihusid.is eða hjá Svandísi í síma 8956637.
