Á lokaíbúafundi Sterks Stöðvarfjarðar verður farið yfir það sem hefur áunnist á fimm árum og rætt um hvað tekur við. Nokkrir styrkþegar kynna verkefni sín og segja frá því sem hefur orðið til með stuðningi verkefnisins.
Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, og fulltrúar Byggðastofnunar ávarpa fundinn. Íbúar og velunnarar Stöðvarfjarðar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðunni.
