Stutt yfirlit yfir útgáfu ljóðafélagsins á 30 ára afmælinu, Nanna Imsland syngur við undirleik Sigríðar Laufeyjar Sigurjónsdóttir. Lögin eru eftir Sigríði Laufeyju, við ljóð úr útgefnum bókum félagsins. Stefanía Guðbjörg Gísladóttir kynnir ljóðabók sína Urðarmána, sem inniheldur bernskuminningar Víglundar Sævars Gunnarssonar frá Mjóafirði. Lesarar Stefanía, Hulda Gísladóttir og Þórður Júlíusson. Tónlist flytja Hulda Höskuldsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir, Guðlaugur Jón Árnason og Guðmundur Kr. Höskuldsson. Víglundur segir nokkur orð í lokin. Kaffiveitingar og allir velkomnir.
Útgáfuhóf Stefaníu G. Gísladóttur á Urðarmána og 30 ára afmæli félagsins
Dags
9. október
Kl.
20:00 - 21:45
Staðsetning
Jónshús Seldal Norðfirði
Upplestur, tónlist og kaffiveitingar. Allir velkomnir
