Bæjarstjórn Fjarðabyggðar er skipuð 9 bæjarfulltrúum sem kosnir eru til fjögurra ára. Bæjarstjórn heldur reglulega fundi tvisvar í mánuði, að jafnaði fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar. Fundirnir eru haldnir í fundarsal sveitarfélagsins að Hafnargötu 2, Reyðarfirði og hefjast kl. 16.00. Fundirnir eru opnir öllum á meðan húsrúm leyfir. Yfir sumarmánuðina er bæjarstjórnin í fríi og fer þá bæjarráð með umboð hennar og afgreiðir mál.
- Bæjarstjórn fer með stjórn Fjarðabyggðar skv. sveitarstjórnarlögum og samþykktum sveitarfélagsins.
- Bæjarstjórn fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, að svo miklu leyti sem öðrum hefur ekki verið falin slíka yfirstjórn.
- Bæjarstjórn gætir hagsmuna sveitarfélagsins og íbúa þess og kemur fram í nafni þess.
- Bæjarstjórn annast þau verkefni, sem henni er falið í lögum, reglugerðum og samþykktum.
- Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins, vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa.
Meirihluta á kjörtímabilinu frá 2006 - 2010 mynda Fjarðalisti og Framsóknarflokkur.
Samþykkt um stjórn og fundarsköp Fjarðabyggðar kveða nánar á um hlutverk bæjarstjórnar ásamt sveitarstjórnarlögum.
Bæjarstjórnarfundir eru sendir út og hægt er fylgjast með þeim í beinni útsendingu kl. 16:00 þriðja fimmtudag hvers mánaðar og einnig er hægt skoða upptökur af bæjarstjórnarfundum