Hvaðan koma hugmyndir að sögum, hvernig verða persónur til og þurfa allar sögur að enda vel? Þessum spurningum og fleirum verður velt upp í ritlistarsmiðjum sem verðlaunarithöfundurinn Bergrún Íris Sævarsdóttir leiðir á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði miðvikudaginn 25. nóvember.
Í smiðjunum fá þátttakendur að spreyta sig á skapandi skrifum og persónusköpun undir leiðsögn Bergrúnar, sem hefur getið sér gott orð fyrir barnabækur sínar, bæði sem höfundur og myndhöfundur.

„Í smiðjunni fá þátttakendur tækifæri til að skapa persónu, bæði í orðum og myndum, sem hægt er að vinna áfram með eftir að smiðjunni lýkur,“ segir Bergrún Íris.
Smiðjurnar fara fram á bókasöfnunum á Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði og eru öllum opnar. Þátttaka er án endurgjalds en nauðsynlegt er að skrá sig með tölvupósti á menningarstofa@fjardabyggd.is.
Heimsókn Bergrúnar er hluti af fjölbreyttri bókmenntadagskrá í Fjarðabyggð í tengslum við Rithöfundalestina, sem fer um Austurland dagana 25.–29. nóvember. Auk opnu smiðjanna heimsækir hún grunnskóla í sveitarfélaginu og tekur þátt í upplestrum.

Bergrún verður meðal höfunda sem koma fram á upplestrarkvöldi á Franska safninu á Fáskrúðsfirði föstudaginn 27. nóvember kl. 20 og á bókmenntaviðburði í Dalahöllinni á Norðfirði laugardaginn 28. nóvember. Í Dalahöllinni les Bergrún upp ásamt Særúnu Hlín Laufeyjardóttur á sérstökum barna- og ungmennaupplestri kl. 13 og á almennum upplestri með öðrum rithöfundum Rithöfundalestarinnar kl. 14.
Ritlistarsmiðjur miðvikudaginn 25. nóvember
- Bókasafnið á Reyðarfirði: kl. 15:00
- Bókasafnið á Fáskrúðsfirði: kl. 17:00
Skráning: menningarstofa@fjardabyggd.is
