Fara í efni
16.11.2026 Fréttir, Menning og mannlíf

Sögur, sköpun og skáldskapur fram að jólum

Deildu

Þjóðsögur og þorskastríð, ritsmiðjur og rithöfundar á ferðinni. Í tilefni dags íslenskrar tungu lítur Menningarstofa Fjarðabyggðar fram á veginn og kynnir fjölbreytta bókmenntadagskrá næstu vikna.

Tungumálið lifir í sögunum sem við segjum, bókunum sem við lesum og hugmyndunum sem við komum á blað. Fram að jólum gefast börnum og fullorðnum í Fjarðabyggð fjölmörg tækifæri til að njóta sagna, hitta höfunda og spreyta sig á eigin skrifum á viðburðum Menningarstofu og samstarfsaðila.

Þjóðsögur og ímyndaðir heimar

Hvað þarf til að skapa þjóðsögu? Fimmtudaginn 19. nóvember kl. 16:00 leiðir listakonan Mollie Tilley smiðju fyrir börn og fjölskyldur í Bókasafninu í Neskaupstað. Þar verður kafað ofan í þjóðsögur, sagnagerð og ímyndaða heima.

Smiðjan fer fram á ensku en íslenskar þjóðsögur og sagnaarfur verða í brennidepli.

Nánar um þjóðsagnasmiðjuna

Guðni Th. varpar nýju ljósi á landhelgismálin

Föstudaginn 20. nóvember flytur Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, erindi í Egilsbúð um útfærslu fiskveiðilögsögunnar og átökin sem henni fylgdu.

Guðni leiðir gesti í gegnum þessa viðburðaríku tíma og segir frá því hvernig fámenn þjóð stóð vörð um mikilvæga auðlind gagnvart stærri og öflugri ríkjum. Sú saga stendur sjávarbyggðum Austfjarða nærri, enda hefur sjávarútvegur lengi verið ein helsta undirstaða atvinnulífs á svæðinu.

Viðburðurinn er samstarfsverkefni Skjala- og ljósmyndasafns Fjarðabyggðar, SÚN og Menningarstofu Fjarðabyggðar.

Nánar um erindi Guðna Th.

Komdu sögunni þinni á blað með Bergrúnu Írisi

Hvernig verður eftirminnileg persóna til og hvað fær lesandann til að vilja vita meira? Miðvikudaginn 25. nóvember leiðir Bergrún Íris Sævarsdóttir tvær ritlistarsmiðjur fyrir ungmenni 12 ára og eldri, þar sem unnið verður með framvindu sagna og persónusköpun.

Smiðjurnar fara fram á:

  • Bókasafninu á Reyðarfirði kl. 15:00
  • Bókasafninu á Fáskrúðsfirði kl. 17:00

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á menningarstofa@fjardabyggd.is.

Fyrr um daginn og föstudaginn 27. nóvember heimsækir Bergrún einnig nokkra skóla sveitarfélagsins og les úr bókum sínum.

Rithöfundalestin leggur af stað

Rithöfundalestin ferðast um Austurland dagana 26.–29. nóvember og færir gestum upplestur og spjall um bækur og skáldskap.

Með í för verða Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Benný Sif Ísleifsdóttir, Skúli Björn Gunnarsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir. Á völdum viðkomustöðum bætast Fjarðafólkið Leifur Helgi Konráðsson, Særún Hlín Laufeyjardóttir og Ína Dagbjört Gísladóttir í hópinn.

Í Fjarðabyggð verður hægt að njóta upplestra á eftirfarandi tímum:

  • Franska safnið á Fáskrúðsfirði: Föstudaginn 27. nóvember kl. 20:00.
  • Dalahöllin í Neskaupstað: Laugardaginn 28. nóvember, með barna- og ungmennaupplestri kl. 13:00 og almennum upplestri kl. 14:00.

Höfundarnir heimsækja einnig skóla og dvalarheimili í sveitarfélaginu.

Ungt fólk á stríðsárunum

Hvernig var að vera ungur á Íslandi á stríðsárunum? Sagnfræðingurinn Leifur Reynisson segir frá lífi ungmenna í máli og myndum í tengslum við útgáfu bókar sinnar Hernámsæskan.

Bókarkynningin fer fram í Íslenska stríðsárasafninu á Reyðarfirði laugardaginn 28. nóvember kl. 17:00. Aðgangur er ókeypis.

Nánar um Hernámsæskuna

Jólaævintýrin bíða eftir að verða skrifuð

Ungir höfundar fá líka sitt tækifæri. Opið er fyrir innsendingar í jólasmásagnakeppni Menningarstofu Fjarðabyggðar, sem er ætluð öllum nemendum í 1.–10. bekk grunnskóla sveitarfélagsins.

Sögurnar mega fjalla um hvað sem hugmyndaflugið býður upp á, svo lengi sem þær tengjast jólunum, áramótunum eða hátíðunum í kringum þau. Veitt verða verðlaun á yngsta stigi, miðstigi og elsta stigi og eru bókavinningar í boði frá Bjarti – Veröld, Sögum útgáfu og Óðinsauga.

Síðasti skiladagur er föstudagurinn 4. desember. Sigurvegarar verða tilkynntir 10. desember og verðlaunin afhent á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar. Vinningssögurnar birtast á heimasíðu sveitarfélagsins í aðdraganda jóla.

Nánar um jólasmásagnakeppnina og þátttökureglur

Hvort sem þú vilt hlusta, lesa eða skrifa er því gott tilefni til að gefa sögunum pláss á næstu vikum.