Gengið verður eftir þjóðvegum innan svæðisins. Um er að ræða svæðið frá Þvottárskriðum í suðri, að Dalatanga í norðri. Í Fjarðabyggð verður gengið eftir Þjóðvegi nr. 1 og öðrum vegum að og frá byggðarlögum sem og eftir eldri vegum (Oddsskarð, Vattarnesskriður og frá Breiðdalsheiði). Hið sama gildir um vegi í Djúpavogshreppi og frá Öxi. Til að tryggja öryggi göngumanna verður, þar sem þörf er á, bifreið með blikkandi ljós fyrir aftan göngumenn. Unnir er að því að merkja fylgdarbíla og allir göngumenn verða í merktum "smalavestum" eða sambærilegu.
Markmið verkefnisins "Enn gerum við gagn" eru þessi:
A .... stuðla að heilsueflingu og útiveru.
B .... sýna að eldra fólk getur verið öflugur þátttakandi í því "að vera til".
C .... safna áheitum til stuðnings Krabbameinsfélagi Austfjarðaa
Safnað verður áheitum hjá einstaklingum og fyrirtækjum. Lágmarksfjárhæð í Fjarðabyggð er kr. 20 á genginn km. (Hér að neðan er reiknað með 250 km). Einnig valkostur að greiða kr. 40 / 80 / 100 / 200 / 400, eða að eigin vali.
Kílómetrar | 250 | 250 | 250 | 250 | 250 | 250 |
Krónur | 20 | 40 | 80 | 100 | 200 | 400 |
Samtals | 5.000 | 10.000 | 20.000 | 25.000 | 50.000 | 100.000 |
Í Djúpavogshreppi verða einingaverð önnur og lágmarksfjárhæð 50 kr. á genginn km. (Þar er reiknað með 100 km). Einnig kr. 100 / 200 / 250 / 500 / 1.000, eða að eigin vali.
Kílómetrar | 100 | 100 | 100 | 100 | 100 | 100 |
Krónur | 50 | 100 | 200 | 250 | 500 | 1.000 |
Samtals | 5.000 | 10.000 | 20.000 | 25.000 | 50.000 | 100.000 |
Stofnaður hefur verið bankareikningur í Landsb. til að auðvelda fólki að leggja inn áheitafé. Bankanúmer er sem hér greinir: 0167-05-200001, kt. 610213-0810 (eigandi Jaspis, félag eldri borgara á Stöðvarfirði)
Frekari upplýsingar verða veittar í síma 845-1104 (Hlíf) / netfang bibbasin@simnet.is
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna hér: Enn gerum við gagn_nánari upplýsingar.pdf