Fara í efni
03.02.2026 Fréttir, Tilkynningar, Skólar

Farsældardagar í Fjarðabyggð 5.-18. febrúar

Deildu

Í febrúar verður lögð sérstök áhersla á vinnu að farsæld barna í Fjarðabyggð í samstarfi skólanna og fjölskyldusviðs.

Starfsfólk Barna- og fjölskyldustofu halda vinnustofu með málstjórum og tengiliðum sem sinna farsældarvinnunni þann 5. febrúar með það að markmiði að samhæfa vinnubrögð og þjálfa verklag.  

Í öllum grunnskólum fundar starfsfólk um farsældarvinnuna ásamt fulltrúa Heimilis og skóla, málstjóra frá fjölskyldusviði og tengiliðum í viðkomandi skóla.  Á næstu vikum verður líka fundað um farsældarvinnuna í Tónlistarskóla Fjarðabyggðar og í leikskólunum. Tilgangur þessara funda er að halda áfram að efla og þróa verklagið á þessu sviði. 

Farsældarsáttmálar

Starfsfólk Heimilis og skóla heimsækir Fjarðabyggð dagana 10. - 12. febrúar og halda vinnustofur með foreldrum í öllum skólum með það að markmiði að vinna farsældarsáttmála í öllum bekkjum.  Farsældarsáttmáli er verkfæri sem foreldrar og aðrir geta notað til þess að koma sér saman um gildi og viðmið fyrir börnin sín til að stuðla að þroska og farsæld allra barna. 

Vinnustofurnar verða á eftirfarandi stöðum og tíma: 

  • Vinnustofan í Nesskóla verður þriðjudaginn 10. febrúar, kl. 17:00 -18:30
  • Vinnustofan í Grunnskóla Reyðarfjarðar verður þriðjudaginn 10. febrúar, kl. 17:00 -18:30
  • Vinnustofan í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla verður á Breiðdalsvík miðvikudaginn 11. febrúar, kl. 19:30 - 21:00
  • Vinnustofan í  Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar verður miðvikudaginn 11. febrúar, kl.  20:00 -21:30
  • Vinnustofan í Eskifjarðarskóla verður fimmtudaginn 12. febrúar, kl. 17:00 -18:30 

Hvað er Farsældarsáttmálinn og til hvers er hann?

Flikk meðferð

Í febrúar verður einnig boðið upp á fræðslufyrirlestur á vegum HSA um Flikk meðferð fyrir foreldra barna með kvíða.  

Viðburðir verða allir kynntir nánar í tölvupóstum til foreldra frá viðkomandi skóla.