Fara í efni
18.11.2026 Fréttir, Menning og mannlíf

Fimmtíu ára gömul ráðgáta varð að skáldsögu

Deildu

Hverjir skyldu eiginlega gista á Hótel Öskju á Eskifirði? Þessari spurningu velti Benný Sif Ísleifsdóttir fyrir sér sem lítil stelpa. Fimmtíu árum síðar hefur bernskuforvitnin orðið að skáldsögunni Vetrarþröstum, sem gerist á Austurlandi á árunum 1969 og 1970. Benný Sif er meðal þeirra höfunda sem heimsækja Austurland með Rithöfundalestinni dagana 26.–29. nóvember.

Benný Sif er fædd og uppalin á Eskifirði og hefur í skáldsögum sínum gjarnan sótt efnivið í íslenskt samfélag fyrri tíma. Í nýjustu bók hennar, Vetrarþröstum, segir frá Hinriki, ungum manni úr Reykjavík sem hefur átt erfitt með að finna sinn stað í lífinu. Hann hefur hvorki enst í námi né starfi en fyrir röð atvika verður hann hótelstjóri á litlu hóteli austur á fjörðum.

Hinrik er vinafár ungur maður með lágt sjálfsmat. Hann ræður til sín kokk í von um að eignast vin og þernu sem hann vonast til að verði kærastan hans. Sagan fjallar um leit hans að hamingjunni og hvernig hann reynir að fóta sig í tilverunni.

Hverjir gistu eiginlega á hótelinu?

Kveikjan að bókinni er gamla læknishúsið á Eskifirði þar sem Hótel Askja var rekið þegar Benný var barn. 

/cdn/media/Menningarstofa/Rithofundaleastinn/Mynd-2.JPG?v=1795006534
Gamla læknishúsið á Eskifirði, þar sem Hótel Askja var rekið þegar Benný Sif var barn. Forvitni hennar um hverjir gistu á hótelinu varð, um fimmtíu árum síðar, kveikjan að skáldsögunni Vetrarþröstum.

„Mér þótti hótelið með eindæmum forvitnilegt og átti erfitt með að ímynda mér hverjir gistu þar; hverjir kæmu í heimsókn í bæinn ef þeir ættu ekki skyldmenni til að gista hjá,“ segir Benný.

Á þeim tíma hafði hún sjálf aldrei gist á hóteli og þekkti ekki annað en að ferðafólk gisti hjá ættingjum.

„Þessar vangaveltur mínar frá því ég var smástelpa er kveikjan að þessari sögu og í raun er ég því bara að svara fimmtíu ára gömlum vangaveltum. Þó ekki með vísindalegum hætti.“

Skrifaði í Mjóafirði

Þótt Benný hafi alist upp á Eskifirði segist hún ekki hafa látið sig dreyma um rithöfundarferil á barnsaldri. Bækur hafi vissulega verið nálægar, bæði heima og á bókasafninu, en hún hafi ekki þekkt neina rithöfunda og hugmyndin um að skrifa bækur hafi ekki kviknað fyrr en síðar. 

Eftir að hafa eignast börn og stundað nám í íslensku og þjóðfræði fannst henni loks kominn tími til að láta reyna á ritstörfin. Fyrstu bækur hennar, skáldsagan Gríma og barnabókin Jólasveinarannsóknin, komu út árið 2018.

Benný býr nú í Kópavogi og skrifar að mestu heima hjá sér en tekur tölvuna gjarnan með á ferðalögum. Hún vann meðal annars talsvert að Vetrarþröstum í Mjóafirði.

„Það er kærkomið uppbrot að sitja ekki alltaf við skriftir á sama stað og frábært að vinna í Mjóafirði. Það er auðvitað bara frábært að vera í Mjóafirði yfir höfuð,“ segir hún.

Sérstakt að lesa fyrir sitt fólk

Benný Sif hefur tvisvar áður tekið þátt í Rithöfundalestinni, árin 2018 og 2022, og á góðar minningar frá þeim ferðum.

„Báðar lestirnar voru vel heppnaðar og skemmtilegar og ég hlakka því til að taka þátt í ár. Það er alltaf notalegt að koma austur. Þar er mitt bakland, eins og pólitíkusarnir myndu segja, og eitthvað sérstakt við að lesa fyrir sitt fólk.“

Benný segist ekki vera byrjuð á nýrri bók, en er farin að velta fyrir sér hugmyndum. Hún ætlar að nýta næstu vikur til lesturs og vangaveltna áður en hún kemst aftur í skrifrútínuna í janúar.

Aðspurð um ráð til þeirra sem langar að skrifa segir hún mikilvægast að ofhugsa ekki hlutina, leyfa einlægninni að ráða för og halda sér að verki.

„Skriftir eru að því leytinu eins og öll önnur störf, það gildir að sinna þeim samviskusamlega, bæði þegar menn nenna því og þegar menn nenna því alls ekki.“

Rithöfundalestin í Fjarðabyggð

Rithöfundalestin fer um Austurland dagana 26.–29. nóvember. Með í för verða auk Bennýjar Sifjar þau Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Skúli Björn Gunnarsson og Bergrún Íris Sævarsdóttir.

Í Fjarðabyggð verða meðal annars tveir opnir bókmenntaviðburðir:

  • Föstudaginn 27. nóvember kl. 20: Bókahátíð á Franska safninu á Fáskrúðsfirði.
  • Laugardaginn 28. nóvember kl. 14: Bókahátíð í Dalahöllinni í Neskaupstað, á efri hæðinni.

Á laugardeginum verður jafnframt barna- og ungmennaupplestur í Dalahöllinni kl. 13 og jólamarkaður stendur þar yfir á sama tíma.

Ókeypis aðgangur er að öllum viðburðum Rithöfundalestarinnar.

Nánari upplýsingar um dagskrána má finna í viðburðardagatali Fjarðabyggðar.