Íþróttavika Evrópu verður haldin í Fjarðabyggð dagana 23.–30. september. Boðið verður upp á fjölbreytta hreyfingu og viðburði víðs vegar um sveitarfélagið og ættu flest að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Íþróttavika Evrópu er haldin ár hvert í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið hennar er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Vikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi, undir slagorðinu #BeActive.
Fjölbreytt hreyfing um allt sveitarfélagið
Á dagskránni í Fjarðabyggð eru meðal annars sund, sjósund, gusa, padel, spinning, göngufótbolti, hlaup, jóga, golf, rafíþróttir, kajak, zumba og fjölskylduganga. Einnig verða íþróttaskólar fyrir leikskólabörn, fyrirlestrar fyrir fólk 60 ára og eldra og opnar æfingar hjá íþróttafélögum.
Allir viðburðir vikunnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu og frítt verður í allar sundlaugar Fjarðabyggðar alla vikuna.
Fjarðabyggð tók síðast þátt í Íþróttaviku Evrópu árið 2024. Nú er vikan endurvakin með enn fjölbreyttari dagskrá og eru íbúar á öllum aldri hvattir til að kynna sér það sem er í boði, finna sína hreyfingu og vera með.
Skoða má alla dagskrá Íþróttaviku Evrópu í viðburðadagatali Fjarðabyggðar.
Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á vef Íþróttaviku Evrópu.
