Fara í efni
11.02.2026 Fréttir

Fræðsla, virkni og velferð í forgrunni hjá öldungaráði Fjarðabyggðar

Deildu

Öldungaráð Fjarðabyggðar hefur hafið árið 2026 af krafti og unnið að margvíslegum verkefnum sem snúa að velferð og virkni eldra fólks í sveitarfélaginu. Ráðið hélt sinn fyrsta fund ársins 2026 í janúar og átti jafnframt fund með bæjarráði þar sem húsnæðismál eldra fólks í Fjarðabyggð voru til umræðu. Fengu nefndarmenn þar ítarlega kynningu á stöðu mála, áformum og þeim áskorunum sem unnið er með.

Búið er að mála fjólubláa bekki í Neskaupstað, á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði. Fyrir var fjólublár bekkur á Eskifirði. Öldungaráð lagði upphaflega fram tillögu um að mála slíka bekki í öllum bæjarkjörnum sveitarfélagsins, og er nú unnið að framhaldi verkefnisins fyrir Reyðarfjörð og Breiðdalsvík.

Í nóvember stóð öldungaráðið fyrir fræðslu fyrir eldra fólk þar sem Sigurjón Rúnarsson sjúkraþjálfari flutti erindi um þær líkamlegu breytingar sem fylgja hækkandi aldri og hvað er hægt að gera til að vinna gegn afleiðingum þeirra. Fræðslan þótti afar gagnleg, en veðrátta setti strik í reikninginn og kom í veg fyrir að allir sem vildu gætu mætt. Ráðið hyggst því endurtaka viðburðinn í vor. 

Í janúar bauð ráðið enn fremur upp á skyndihjálparnámskeið sem var vel sótt. Hvetur ráðið eldra fólk í Fjarðabyggð til að fylgjast vel með fleiri fræðslum á næstu mánuðum, þar sem áhersla verður lögð á bæði heilsu, öryggi og samfélagslega virkni.

Öldungaráð vekur einnig athygli á kynningarfund hjá Janusi Heilsueflingu miðvikudaginn 11. febrúar. Hreyfing er afar mikilvæg fyrir eldra fólk því hún styrkir líkama og liðamót, bætir jafnvægi og minnkar þannig líkur á falli og meiðslum. Regluleg hreyfing styður einnig við hjarta- og æðakerfið, eykur úthald og hjálpar fólki að halda sjálfstæði lengur. Hún hefur jafnframt jákvæð áhrif á andlega heilsu – dregur úr streitu, bætir svefn og getur aukið lífsgleði og félagslega virkni. Með reglulegri hreyfingu er því auðveldara að lifa heilbrigðu, virkri og öruggu lífi á efri árum. Fundurinn verður einnig í streymi. 

Auk þess vill öldungaráðið vekja athygli á fræðslu um upplýsingaöryggi fyrir eldra fólk, viðburði sem Sparisjóðirnir og Símenntun Háskólans á Akureyri standa að. Hvetur ráðið íbúa til að fylgjast með tilkynningum frá þessum aðilum og nýta sér fræðsluna þegar hún verður í boði.